Leita í fréttum mbl.is

Þegar öllu er á botninn hvolft

Núna streyma kosningabæklingarnir inn um bréfalúgur landsmanna. Þeim er ætlað það hlutverk að upplýsa háttvirtan kjósanda um stefnumál flokkanna, sem í boði eru. Einhverra hluta vegna er ég litlu nær um tilgang og markmið í öllum loforðaflauminum. Einn bæklingur finnst mér þó skera sig úr, því hann byggir á raunsæi. Forsíðu hans prýða foringjar Sjálfstæðisflokksins, þau Geir og Þorgerður Kartín, og hin skynsamlegu orð:”Þegar öllu er á botninn hvolft er traust efnahagsstjórn stærsta velferðarmálið”. Sannleikurinn er auðvitað sá að kjósendur vita hvað þeir hafa, en vita ekki hvað þeir fá. Þótt “félagshyggjuflokkarnir” núi Sjálfstæðisflokknum gjarna um nasir, að bera ekki hag þeirra sem minnst mega sín fyrir brjósti, er það beinlínis hrein sögufölsun. “Sósíalismi” Sjálfstæðisflokksins er fremur af toga kristilegs hugarfars, en “skömmtunarsósíalisma” þeirra, sem kenna sig við “félagshyggju”. Einhver snjallasti leikur síðari ára í stjórnmálum var leikinn af formanni Sjálfstæðisflokksins, er hann greindi frá því í síðustu landsfundarræðu sinni, að framvegis yrðu öryrkjar metnir út frá því hvað þeir gætu unnið, en ekki því, hversu veikburða þeir væru. Ég spái því að þessi nálgun muni gjörbreyta aðstæðum fjölmargra öryrkja, öllum í hag, á komandi árum. Merkilegt hvað fjölmiðlar hafa lítið fjallað um þessa merku réttarbót.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Laufey Einarsdóttir

Sammála þér. Nú er ríkistjórnin í góðum málum og á að halda áfram til góðra verka með hærri tekjum fyrir öryrkja og aldraða.

Kveðja

Sigríður Laufey Einarsdóttir, 13.5.2007 kl. 17:44

2 Smámynd: Gústaf Níelsson

Sannleikurinn er sá að hugsa þarf framrás Íslands án þess að vera með sósíalistana í farteskinu, Sigríður Laufey. Tækifærin eru þess eðlis að vinstriflokkarnir eiga að daga uppi, líkt og tröllin.

Gústaf Níelsson, 13.5.2007 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband