Leita í fréttum mbl.is

"Þríhjólsstjórnin" blasir við.

Gaman var að horfa á formenn stjórnmálaflokkanna ræða saman í sjónvarpssal að loknum kosningum. Ljóst er að formaður Sjálfstæðisflokksins hefur öll tromp á hendinni. Ríkisstjórnin heldur velli og “til Bessastaða er leiðin löng”. Bóndinn á þeim bæ fær ekki að vera með á ballinu. Ríkisstjórnin lafir, en þarf að styrkja sig. Hvernig getur hún það? Með því að kippa Frjálslyndaflokknum inn, enginn vafi. Nú gefst tækifæri til þess að mynda öfluga velferðarstjórn til hægri, sem tekur á erfiðu málunum þeim megin, en heldur áfram að liðka fyrir framrás atvinnulífsins. Hið ríka Ísland setur sér það markmið að skilja engan útundan. Ný ríkisstjórn af þessu tagi er fær um að sýna fram á það að enga sósíalista þarf til þess að skapa traust velferðarsamfélag, þeir verða skildir eftir; daga uppi. Stjórnmálaferill Ingibjargar Sólrúnar verður endaslepptur, og hinu versta úr stjórnmálahugmyndafræði 20. aldarinnar verður hent á hauga. Og Steingrímur J. heldur bara áfram að vera kommi. Á þeim þarf íslenska samfélagið ekki að halda. Ég er alveg hissa á því hve nærri spá mín var raunverulegum kosningaúrslitum, en þetta má lesa á bloggi mínu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband