Leita í fréttum mbl.is

Í fótspor Steingríms Hermannssonar.

Okkar ágæti utanríkisráðherra hyggst gera sér ferð til Mið-Austurlanda og leggja lóð sitt á vogarskálar friðar og mannréttinda. Margt þarfara getur hún nú gert fyrir íslenska hagsmuni og mín vegna má hún éta svið með hryðjuverkamönnum, líkt og Steingrímur Hermannsson forðum með Yassir Arafat, þeim mikla mannréttindafrömuði, sem ráðstafaði hverri gjafakrónu ríku þjóðana til bágstaddra. Ég treysti því að hún leggi til við heimastjórnina að Hamasliðar verði afvopnaðir, sem og aðrir hópar, sem eru undir vopnum og ógna friði á þessu svæði. En kannski fer hún bara eins og asni klifjaður gulli, svo létta megi byrðar makráðrar yfirstéttar staðarins.
mbl.is Ingibjörg Sólrún vill heimsækja Miðausturlönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ég er alveg sammála Gústaf með það að nauðsynlegt er að afvopna vopnaðar sveitir í Miðausturlöndum, sem ógna friði á því svæði. Mikilvægast af öllu er að afvopna ísraelska herinn, grimmustu og miskunarlausustu hryðjuverkasamtökin á þessu svæði.

Skúli. Þeir, sem mest skortir bakgrunnsþekkingu á ástandinu í Miðausturlöndum séu þeir, sem halda að ofbeldið þarna sé fyrst og fremst Aröbum að kenna. Þar er verið að kenna fórnarlömbum ofbeldis um ofbeldið. Einnig er það mikill skortur á bakgrunnsþekkingu að halda að barátta Palestínumanna hafi eitthvað með trúgarbrögð að gera. Þetta eri einfaldlega barátta gegn hernámi.

Sigurður M Grétarsson, 5.6.2007 kl. 21:42

2 Smámynd: Gústaf Níelsson

Þú verður að gera greinarmun á því Sigurður, að ísraelski herinn lýtur lögmætum stjórnvöldum, en hryðjuverkahópar á borð við Hamas og Al Fatha og ýmsir fleiri, gera það ekki. Í öllum ríkjum reyna stjórnvöld að afvopna hópa, sem ekki lúta réttum og löglegum yfirvöldum.  

Gústaf Níelsson, 5.6.2007 kl. 21:54

3 identicon

Sæll Félagi, það hefur komið mér á óvart að þú hefur ekki bloggað um velferðafasisman, alias reykingarbannið. Hefur Lýðheilsustöð náð að drepa í þér ? Kveðja Jón Ellert

Jón Ellert Tryggvason (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 16:52

4 identicon

Ég sæi það gerast að einhver næði að drepa í honum Gústa, reykingarkappanum sjálfum. :D  En ég er sammála honum Jóni Ellert, væri til í að sjá einhver skrif um velferðafasisman.

með kveðju Árný

Árný (IP-tala skráð) 8.6.2007 kl. 08:28

5 Smámynd: Linda

Það er ekki öllum auðvelt að skilja muninn á hermanni og hryðjuverkamanni margur sem getur ekki séð muninn trúir því líka að BNA menn hafa sjálfir sprengd "tvíburaturnana " í New York. 

Linda, 10.6.2007 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband