Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Ögmundur góði Jónasson

stígur fram með góðu fordæmi og þiggur ekki ráðherralaun fyrir störf sín. Þingfararkaupið dugar honum og er það vel. Loksins er honum orðið ljóst að rekstarkostnaður við heilbrigðiskerfið er um 80% launakostnaður og kostnaðarlækkun verður ekki náð í því kerfi, sem rekið er fyrir skattfé, nema að umtalsverðar launalækkanir eigi sér stað. Er til of mikils mælst að tímabundið, að minnsta kosti, lækki laun lækna um 25% líkt og laun forstjóra Orkuveitunnar, og að í framtíðinni verði laun læknastéttarinnar almennt ekki umfram laun forsætisráðherra landsins? Er til of mikils mælst að laun sérfræðingastóðsins, sem fyllir allar stofnanir ríkis og sveitarfélaga, séu ekki hærri en þingfararkaup, þótt tímabundið verði? Og er ekki örugglega hægt að spara í menntakerfinu líka, svo ekki sé nú talað um opinbera tryggingabótakerfið?
mbl.is Ögmundur fær ekki ráðherralaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjómenn og hvítflibbar

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórans hefur klófest sjómenn sem stunda peningaþvætti í reglulegum siglingum sínum til landsins. Þessu ber auðvitað að fagna. En er enginn möguleiki að ná í skottið á þessum velklæddu, sem fljúga á milli landa á sagaklass, og lepja kampavín og kavíar. Mennina sem hafa stundað milljarða viðskipti heimshorna á milli, en hafa nú einhvern veginn á sérkennilegan hátt "týnt" öllum viðskiptagróðanum. Ég geri ráð fyrir því að sjómennirnir séu ekkert annað en sígarettu- og sælgætisþjófar í samanburði við stórséníin, sem ganga um í teinóttum, ýmist með hálstau af fínustu sort eða þá flegið í hálsinn. Þetta er nánast eins og "ekkifrétt" í samanburði við það sem mann langar til að fá að frétt.
mbl.is Komið upp um peningaþvætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúgunarárátta og vanþekking

Aðstoðarforstjóri amrískrar verslunarkeðju AC Gallo að nafni hefur sent Steingrími J. bréf og tilkynnt honum að keðjan hans sé hætt að kynna íslenskar vörur í verslunum sínum í mótmælaskyni við hvalveiðar Íslendinga.

Þessum ágæta aðstoðarforstjóra er auðvitað alveg ókunnugt um það að  hvalveiðar Íslendinga eru sjálfbærar, vistvænar og í sátt við öll heilbrigð umhverfisverndarsjónarmið. Hann er bara einn af þessum grunnhyggnu umhverfispopulistum, sem mega vart vatni halda sé minnst á hvalveiðar. Þeir eru að vísu ekkert ófáir og taka engum rökum. Fínt, ef hann vill ekkert með okkur hafa og vill kúga okkur til undirgefni við rangar og órökstuddar umhverfisverndarskoðanir, þá það. Vart geta allir stjórnendur verslanakeðja í Bandaríkjunum verið flón og einfeldningar alltaf sammála síðasta ræðumanni. Ef það er svona mikilvægt að koma vörum á þennan markað og markaðurinn vil vöruna, þá er að finna aðra verslanakeðju, þær eru víst fjölmargar.


mbl.is Hætta að kynna íslenskar vörur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menningaraukinn að störfum

Undanfarna daga hefur íslenska þjóðin fagnað og þakkað útlendingum fyrir að hafa auðgað menningu mörlandans og stuðlað að eftirsóknarverðu fjölmenningarþjóðfélagi hér í fásinninu. Þeir sem hafa fundið að þessu dekri og smjaðri fyrir útlendingum eru umsvifalaust stimplaðir útlendingahatarar og rasistar. Einhvern veginn finnst mér að þjóðin geti alveg lifað án þessarar tegundar fjölmenningar, og rétt sé að smíða að nýju girðingar um land og þjóð, þótt þær væru ekki nema lágreistar. Það voru mistök að rífa þær alveg niður.
mbl.is Myndir af skartgripaþjófnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börn taki til hendinni

Í ein þrjátíu ár hafa börn á Vesturlöndum vart þurft að taka til hendinni svo nokkru nemi. Alin hefur verið upp hengirúmakynslóð, sem finnur ekki kröftum sínum viðnám. Afleiðingarnar eru kunnar, en enginn vill sjá lækninguna. Nútímabarnið hefur svo mikinn tíma til að "gera ekki neitt" að til vandræða horfir. Áður en internet og tölvur komu til sögunnar sat ungafólkið fyrir framan sjónvarpsskjáinn dægrin löng og alltaf lengdist dagskráin. Nú er hún allan sólarhringinn. Netið tók ungdóminn endanlega til sín og nú eru margt ungmennið hreinn netfíkill (og sumir fullorðnir líka í slíkum mæli að vinnustaðir funkera vart).

Voru það ekki hrein velferðarmistök að banna vinnu barna og unglinga? Það er búið að taka allan ábyrgð frá þeim blessuðum. 


mbl.is Halda ekki í við netnotkun barnanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stígamóta-Rúna hreinsar út!!

Það mátti greina örlítinn varaskjálfta á Stígamótafrúnni þegar hún hróðug sagði okkur frá því að nú eygði hún möguleika á því að nektardansstaðir yrðu alfarið bannaðir með lögum fyrir þinglok. Og að vanda tekur rógberinn í hópi þingmanna, Atli Gíslason vinstri grænn, undir, með rulluna um að almennt séð séu slíkir staðir gróðrarstía vændis og mansals. Atli hefur að vísu ekkert fyrir sér í þessu efni, þótt bæði hann, og Stígamótafrúin, hafi verið beðin um að leggja á borðið eitthvað fullyrðingunni til staðfestingar. Og fréttamenn eru ekkert að hafa fyrir því að krefja þau um sannanir fyrir alvarlegum ásökunum. Undir þessu þurfa menn að sitja þótt þeir stundi löglega atvinnustarfsemi. Á þessum síðustu og verstu tímum er erfitt að gera sér í hugarlund að Alþingi fari að loka atvinnufyrirtækjum með lögum, vegna hugarburðar og óra fólks, sem er bókstaflega með klám á heilanum og sér klám, vændi og mansal í hverju horni. En það er aldrei að vita, málið virðist vera svo alvarlegt, að brýnum hagsmunum fólks og fyrirtækja sé fórnandi fyrir lokum eins eða tveggja næturklúbba.

Hvar er nú öllu kvenfrelsinu fyrir að fara. Í eina tíð réðu konur líkama sínum, þegar þær börðust fyrir frjálsum fóstureyðingum, en þegar þær vilja fækka fötum á þessum sama líkama og það fyrir peninga, ráða stjórnmálamenn.


mbl.is Ísland ríður á vaðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljúgðu Liddy, ljúgðu

Hinn ágæti forstjóri tryggingarisans AIG, Edward Liddy, reynir að telja okkur trú um það að "kaldur raunveruleiki samkeppninnar" hafi knúið fyrirtækið til að greiða æðstu yfirmönnum 165 milljónir dala í kaupaukagreiðslur. Það er nærri þeirri upphæð sem skattgreiðendur í Bandaríkjunum létu af hendi svo kompaníið færi ekki á hausinn. Ef svona menn koma ekki óorði á kapítalismann, þá veit ég ekki hverjir. Var hann hræddur um að missa mikilvæga starfsmenn, eða þá að þeir hótuðu málsókn ef ekki yrði staðið við kaupaukagreiðslur? Hvaða útreið ætli sá fyrsti fengi, sem hæfi málsókn til að fá kaupaukann greiddan? Á alltaf að gera ráð fyrir því að allt fólk sé siðspillt? Vonandi finna bandarísk stjórnvöld leið til hindra þessa vitleysu. Þetta sjálftökulið allra landa verður að stöðva.

Ég hef áhyggjur af bankanum mínum Byr. Hann gat greitt eigendum sínum dálaglegar arðgreiðslur á síðasta ári, nú þarf hann hærri upphæð í ríkisstyrk svo hann stöðvist ekki. Og við erum ekki að tala um neitt smotterí. Geta þessir ágætu menn ekki skilað arðinum aftur inn í fyrirtækið sitt???

 


mbl.is Forstjóri AIG ver kaupaukagreiðslurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gagnsætt og uppi á borðum

Nú er það gagnsætt og uppi á borðum - beinlínis blasið við að ekki einu sinni stjórnarþingmennirnir nenna að mæta til starfa. Þeim liggur ekkert á að bjarga þjóðinni í efiðleikum og eina aðgerðaáætlunin sem lögð hefur verið fram snýst um það að banna nektardans, þar sem allt er þó gagnsætt og uppi á borðum. Eina starfsstéttin sem ekkert hefur að fela er lögð í einelti af stjórnmálamönnum, sem nenna ekki að mæta í vinnuna. Væri ekki nær að svikahrappar fjármálaheimsins sviftu sig klæðum í nafni gagnsæis. Mín vegna mættu þeir vera uppi á borðum við þá iðju.
mbl.is Þingmenn mæta illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlendingasmjaður smálandans

Það er ekki á Íslendinga logið hvað þeir eru upp með sér og roggnir, ef erlendir menn vilja setjast að í landi þeirra, svo maður tali nú ekki um að hafa hönd í bagga með stjórnun helstu fjármálastofnana og elta á röndum fjárglæframenn, sem við kunnum jú ekkert að fást við. Nú hyggjast ýmis fyrirtæki og stofnanir hleypa af stokkunum sérstakri smjaðursherferð og þakkargjörð, vegna þess að innflytjendur hafa auðgað svo mannlíf og menningu landsins og byggt upp fjölbreytt og öflugt samfélag. Markmiðið er víst að vekja okkur til umhugsunar um það jákvæða sem fjölmenning hefur í för með sér fyrir íslenskt samfélag, eins og segir í fréttinni.

Er einhver sem vill benda mér á allt þetta jákvæða, því einhvern veginn kemur þetta neikvæða fremur upp í huga minn. Til dæmis hrottalegar barsmíðar, sem mörlandinn á ekki beint að venjast, og ógeðslegri nauðganir á blásaklausum konum á almannafæri. Raunar er hægt að telja upp langan glæpalista sem er miklu þróaðri en við eigum almennt að venjast, en auðvitað lærum við af fjölmenningunni.

Enginn skal þó skilja mig svo að ég hafi eitthvað á móti því að útlendingar setjist að á Íslandi, en ég áskil mér rétt til þess að andmæla því að hingað til lands sé flutt í stórum stíl bláfátækt og menntunarlaust fólk. 


mbl.is Útlendingum þakkað fyrir að auðga samfélagið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðgerðaáætlun ríkisstjórnar

Maður hefur beðið spenntur eftir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í málum sem skipta almenning í þessu landi einhverju máli. Ber þar auðvitað hæst aðgerðir til hjálpar heimilum og fyrirtækjum, svo fólk þurfi ekki að gista og mæla göturnar í nánustu framtíð. Nú hefur ríkisstjórnin kynnt mikilvæga aðgerðaáætlun sem lýtur að því að opinberir starfsmenn á ferð í útlöndum megi ekki skemmta sér að eigin smekk, að loka skuli næturklúbbum og banna nektardans, sem engri vestrænni ríkisstjórn hefur hugkvæmst, og alls ekki í því skyni að treysta efnahagsgrundvöll lands og þjóðar. Svo á auðvitað að banna mönnum að greiða konum fyrir smávægilegt poterí og gera refsivert. Það er álíka vitlaust og að refsa mönnum fyrir að kaupa tiltekna vöru, þótt hún sé til sölu og seljandinn oti henni mjög að mönnum.

Að sönnu er mansal skelfileg starfsemi, en aldrei hef ég vitað til þess að nokkur karl eða kona sé hér á landi þvert gegn vilja sínum starfandi við eitthvað miður fallegt, auk þess sem lög eru í landinu gegn mansali. Einhvern veginn læðist sá grunur að manni að þessi aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar sé frekar til þess fallin að draga athygli almennings frá því sem raunverulega skiptir máli, og því að ríkisstjórnin er óhæf með öllu.


mbl.is Kaup á vændi verði refsivert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband