Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Eftirmann hvað?

Það er alveg ástæðulaust fyrir sjálfstæðismenn að láta andstæðinga flokksins ákveða hver gegnir embætti bæjarstjóra í Kópavogi. Gunnar Birgisson er bæjarstjóri, og vilji framsóknarmenn að einhver annar en hann gegni starfinu, þá skulu þeir bara mynda nýjan meirihluta með öðrum en Sjálfstæðisflokknum. Verði þeim að góðu.
mbl.is Fundað um eftirmann Gunnars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fasistaríki í mótun?

Öllum skal rutt úr vegi sem ríkisstjórninni er í nöp við. Frægt var þegar seðlabankastjórinn Davíð Oddsson var rekinn út starfi með lögum, án þess að hafa svo mikið sem andmælarétt. Tveir samstarfsmenn hans, sem helgað höfðu bankanum starfskrafta sína áratugum saman, fengu að fjúka í leiðinni. Aðgerðin var pólitískt gerræði, í reynd fasísk aðgerð, og skapaði slæmt fordæmi. Nú skal ríkissaksóknarinn Valtýr Sigurðsson fá að fjúka með lögum. Fordæmið er skelfilegt vegna þess að stjórnmálamenn ætla að leggja til atlögu við mann sem að lögum tilheyrir dómsvaldinu, sem er sá hluti ríkisvaldsins, sem þeir hafa ekkert með að gera. Fróðlegt verður að sjá hvort alþingi treystir sér til þess að láta Evu Joly stjórna sér.

Verði ríkissaksóknarinn settur af með lögum, hefur fasisminn haldið innreið sína í landsstjórnina. Fróðlegt verður að fylgjast með viðbrögðum nágrannaríkjanna við þessum ráðagerðum.


mbl.is Ríkisstjórn styður Joly
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað hefur Eva Joly lagt til?

Er hún nú orðin óhress kerlingarkvölin með lakar undirtektir íslenska réttarríkisins við tillögum hennar? Vill ekki einhver vera svo vænn að segja okkur sem borgum reikninginn frá rannsóknardómaranum, hvaða ráð það eru sem fá svona litlar undirtektir og eftir hverju hefur ekki verið farið? Eru það kannski ráð sem Spænski Rannsóknarrétturinn, Gestapo, eða Stasi, hefðu talið góð og gild? Ekki veit ég, en fróðlegt væri að upplýst yrði um ráð hinnar ráðagóðu Joly.
mbl.is Góð og gagnleg skoðanaskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfgahægriflokkar?

Evrópskir vinstrimenn eru óhressir nú um stundir vegna lélegs gengis í nýafstöðnum kosningum til Evrópuþingsins. Þótt kvöldskólalögfræðingurinn og vinstri græni komminn Eva Joly, sem Íslendingar hafa kynnst í gervi kjaftforu fuglahræðunnar og ástundar nornaveiðar á vegum ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms J. Reykáss, hafi náð kjöri til þessa merka þings, var það samt svo að fólk, sem leggur meiri áherslur á þjóðleg gildi og klassískt gildismat landa sinna, fékk meira brautargengi en hávaðasamir upphlaupsmenn á vinstrivængnum.

En þegar þetta gerist er jafnan talað um að öfgahægriflokkar hafi styrkt stöðu sína. Á kostnað hverra? Öfgavinstriflokka kannski? Orðanotkun blaðamanna af þessu tagi er ónothæf; að kalla alla, sem ekki eru flaðrandi uppum kommúnista og alls konar vinstrihreyfingar, öfgahægrimenn, fasista, rasista eða eitthvað þaðan af verra.


mbl.is Egg í umdeildan leiðtoga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband