Leita í fréttum mbl.is

Pólitískur leikskóli Guðmundar Steingrímssonar

Íslenska stjórnmálakerfið tekur stundum á sig skrítnar birtingarmyndir. Segja má að kjarninn í skringilegheitunum sé barátta utanveltumanna gegn fjórflokknum, sem svo hefur verið kallaður. En fjórflokkurinn hefur í reynd aldrei verið til nema í hugum þeirra, sem aldrei hafa getað verið í neinum flokki, en haft pólitíska viðkomu víða. Guðmundur Steingrímsson er einn slíkur.

Af fréttum að dæma um pólitíska hugsun hans má það eitt ráða að lífið sé spennandi og áhugavert og fyrirhöfnin öll muni leiða til betra Íslands. Svo er hann búinn að komast að því að til er fullt af fólki sem finnst það ekki eiga heima í þessum hefðbundnu flokkum og upplifir flokkakerfið ekki í stakk búið til að sinna kröfum nútímans. Það er engu líkara en að Guðmundur hafi aldrei stigið inn fyrir dyr  hjá þessum "hefðbundnu stjórnmálaflokkum". Sannleikurinn er auðvitað annar. Hann er flokkaflakkari!!

Guðmundur Steingrímsson er mjög fyrirsjáanlegur stjórnmálamaður, hann er tækifærisinni, eins og hann á kyn til, en hefur engan stjórnmálaflokk að baki sér, líkt og forfeður hans. Hann er reiðubúinn til að leggjast lágt fyrir pólitískan frama, en árangur er óviss. Pólitískt samstarf með borgarstjóranum Jóni Gnarr er einkennilegt sjónarhorn um framtíðarsýn,svo ekki sé meira sagt.

Aðspurður um helstu stefnumálin segir hinn ungi stjórnmálaleiðtogi:"Við erum öll víðsýnt fólk, fylgjandi þessum lýðræðisumbótum sem er verið að tala um eins og stjórnlagaráði.  Ekkert okkar er á vegum sérhagsmuna, við erum að hugsa um almannahagsmuni og heiðarleika í pólitík og viljum stunda hann og viljum líka tala öðruvísi í pólitík. Þetta er friðarins fólk, fólk sem hefur mannúð og frið í hávegum, alþjóðlega sinnað held ég að megi segja og margt hvert Evrópusinnað."

Er pólitískur leikskóli í burðarliðnum eða eitthvað annað?

Er einhver nær?

 


mbl.is Áhugi víða fyrir nýju framboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Nei, allavega er ég engu nær.

Viðar Friðgeirsson, 22.9.2011 kl. 00:01

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég ekki heldur.

Ragnhildur Kolka, 24.9.2011 kl. 15:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband