Leita í fréttum mbl.is

Prestastefna stendur í ístaðinu.

Þau ánægjulegu tíðindi hafa borist frá Húsavík, að prestastefna hafi hafnað tillögu “félagsfræðiprestanna” um heimild forstöðumanna trúarsafnaða og presta þjóðkirkjunnar til að gefa saman í hjónaband samkynhneigð pör. Þessi afstaða prestastefnu er mjög afdráttarlaus. Það var aumkunarvert að horfa á þann myndralega, og að manni virtist hraustlega homma og öryrkja, Sigurstein Másson, halda því fram í Kastljósi sjónvarpsins að hér hefði “jafnréttið” verið fyrir borð borið. Þessi sami Sigursteinn er eftir því sem ég best veit kvæntur, eða giftur, eftir atvikum, og nýtur allra þeirra réttinda sem löggerningurinn hjónaband veitir hjónunum karli og konu, að íslenskum lögum. Hvað vill hann meira? Jú jafnrétti, en jafnrétti um hvað? Þjóðkirkjan er ekki einhver “félagsfræðikirkja”, sem hægt er sníða að aldarfari samtíðar hverju sinni. Þó hefur biskupinn gengið svo langt til sáttargjörðar, að blessa það sem Drottinn hefur forboðið. Er ekki kominn tími til að “fjölkynhneigðir” láti kirkjuna í friði, því hún er seinþreytt til vandræða og vill gæta allra sinna barna. Sú afstaða á sér rætur í kærleiksboðskapnum. Delluhugmyndir öðlast enga staðfestu þótt á þær séu hengd hugtökin “jafnrétti” og “mannréttindi”.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gústaf Níelsson

Ágæti Jón Arnar. Þú ert skemmtilega "píkulegur" í dressinu á myndinni. Svo ertu líka búsettur í Danaveldi. Þá þarftu ekki að hafa neinar áhyggjur af útgjöldum þínum til íslensku þjóðkirkjunnar. Sú danska getur ábyggilega huggað þig á ögurstund og það frítt. Og bara þér til upplýsingar þá er íslenska þjóðkirkjan ekki ríkisrekin í sama skilningi og t.d. Landhelgisgæslan eða hver önnur stofnun ríkisins. Það er of langt mál að rekja fyrir þér fjárhagstengsl ríkis og kirkju, en þú getur alveg sofið rólegur, og þjóðkirkjan er ágætlega komin án þín.

Gústaf Níelsson, 25.4.2007 kl. 22:50

2 Smámynd: Linda

Vá,þú ert beittur hnífur, ætla fá að fylgjast með þínum skrifum áfram.  Petur postuli hefði fílað þig í botn og ekki má gleyma Páli, báðir voru þessir menn beittir liðsmenn Frelsarans Jesú.

  

Linda, 26.4.2007 kl. 04:02

3 Smámynd: Viðar Eggertsson

Kynórar þínir Gústaf ríða nú ekki við eynteyming! Finnst maðurinn "píkulegur"... Hómófóbían er að koma í ljós eins og sálfræðingar hafa löngum vitað. Gústaf er semsagt hommi með bælda samkynhneigð... þeir eru nú reyndar svo frústreraðir hómófóbísku greyin að góð sálfræðimeðferð er þeim hollust, svo ekki hljóti skaði af. Því bældar kynhneigðir geta fengið "bestu" menn til að bregða brandi á þá sem helst skyldi hlífa.

Og hrokafull afstaða þín til Dansk samfélags er vart "kristilegt hugarfar"... en lengi skal manninn reyna.

Viðar Eggertsson, 26.4.2007 kl. 18:16

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Glæsilegt framtak hjá þér Gústaf, sammála þessari grein þinni. Guð blessi þig fyrir það.

Viðar, hvernig væri að þú færir að kynna þér málin betur áður en þú ræðst á fólk eins og hér. LESTU áður en þú gagnrýnir, en þú sannar þá kenningu að heimskustu mennirnir kynna sér ekki andstæðingin áður en ráðist er á hann.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 26.4.2007 kl. 20:10

5 Smámynd: Gústaf Níelsson

Sæll Viðar. Ég fagna innliti þínu á síðu mína. Auðvitað er gagnlegt að vera málefnalegur, en þú hefur valið hið gagnstæða. Á meðan ég vel konur til fylgilags velur þú karla. Margt má sjálfsagt um okkur báða segja, en snefil af bældri samkynhneigð hef ég ekki, þótt þú sjálfsagt gælir við þá hugmynd. Dream on honey. Þegar ég nota orðið "píkulegur" í því samhengi sem það var sagt vísar það til þess að mér finnst Jón Arnar á myndinni kvenlegur eða dömulegur. Nú er ég alls ókunnur öllu skrafi við sálfræðinga, en þakka góð ráð. Þú ert sjálfsagt gagnkunnugur á þeim bæum. Mér er það hulin ráðgáta hvernig þú finnur út hrokafulla afstöðu mína til dansks samfélags, Danir eru mínir uppáhaldsútlendingar. Átti meira að segja einu sinni danska kærustu, kvenkyns. Hugleiddu svo betur stofnun sérkirkju samkynhneigðra. Bara til að halda friðinn. Verðum í sambandi. Bestu kveðjur.

Gústaf Níelsson, 26.4.2007 kl. 20:10

6 Smámynd: Gústaf Níelsson

Sæll Guðsteinn Haukur. Þakka þér hlý orð í minn garð. Ég er rétt að byrja og fagna allri málefnalegri umræða. Það er gaman þegar rökin takast á, en leiðigjarn, þegar slegið er undir belti.

Gústaf Níelsson, 26.4.2007 kl. 20:28

7 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Einmitt Gústaf, mér fannst Viðar vega illa að þér, þess vegna talaði ég svona til hans á máta sem ég er ekki vanur að nota. En ég kann virkilega vel við þau hnífbeittu rök sem þú notar. Það væri mér heiður að fá þig sem blogvin minn. Guð blessi þig bróðir.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 26.4.2007 kl. 21:31

8 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Gústaf. Þú ert dónalegur. Kannt ekki mannasiði. Talar niður til fólks og undir þetta skrifar þú Guðsteinn! Hvernig þú talar niðrandi til Jóns Arnars er með ólíkindum. Verði ykkur hinum svokölluðu "sannkristnu" að góðu! Það er sko greinilegt að skrattinn heldur í skottið á ykkur og hlær.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 28.4.2007 kl. 01:33

9 Smámynd: Gústaf Níelsson

Margrét,eða má ég kannski kalla þig Möggu, mér finnst eiginlega eins og að við séum orðnir pennavinir. Veistu, ef hún mamma sæi hvernig þú skrifar myndi henni ekki lítast á blikuna. Hún sem kenndi mér mannasiðina. Svo segir hún Begga mín að ég sé alltaf svo penn og elegant. Ég er eiginlega hálfringlaður af öllum þessum ósköpum í þér Magga mín. Heldurðu að honum Jóni Arnari líði eitthvað illa? Ég held ekki. En það er þó snöfurkvenlegt hjá þér að taka upp þykkjuna fyrir hann. Og svo máttu ekki tala svo til hans Guðsteins, þótt hann taki undir orð mín. Ég held að hann sé vænsti drengur. Heldurðu það ekki? Og þetta með skrattann, ertu nokkuð með skott? En þú ert alveg yndisleg; þér hefur bærilega tekist að þjóna lund þinni hér á síðunni minni og þú ert alltaf velkominn aufúsugestur

Gústaf Níelsson, 28.4.2007 kl. 03:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband