Leita í fréttum mbl.is

Klerkastjórn með kjarnorkuvopn.

Merkilegt hvað þjóðir heimsins ætla að draga lappirnar lengi og heykjast á því að setja írönskum stjórnvöldum stólinn fyrir dyrnar varðandi kjarnorkuvopnavæðingu landsins. Engum dylst hvað fyrir Írönum vakir. En þeir, líkt og ýmsar aðrar illþýðisríkisstjórnir, spila á samstöðuleysi alþjóðasamfélagsins. Getum við gert okkur í hugarlund ástand í veröld, þar sem klerkastjórn ræður kjarnorkuvopnum?  
mbl.is Íranar stórauka kjarnorkuframleiðslugetu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll, Gústaf !

Þarna eiga Vesturlönd stærstu sökina, andvaraleysi, samfara smjaðri og óþrjótandi dekri, við klerkaskrattana. Manstu, árið 1979, þegar; reyndar, hinum misvitra keisara þeirra Persa, Reza Pahlavi var steypt af stóli, að þá kepptust leiðtogar á Vesturlöndum við, að komast í vinskap við klerkana. Þetta hefir haldizt síðan.

Og annað Gústaf ! Núna,      

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 00:02

2 identicon

Ahh,,, var fullfljótur á takka helvítið,,, jú, þegar hinn glottuleiti utanríkisráðherra Tyrklands (held ég fari rétt, með titilinn) Gul, að nafni reyndi, að smeygja sér í forsetastólinn þar, um daginn, að þá var það herinn, sem sagði hingað og ekki lengra. Hljótum, að bera nokkra virðingu, fyrir þeim Tyrkjum, hverjir halda í heiðri minningu Ataturks heitins, hver reyndi að koma Mekka boðskpnum út úr tyrknesku þjóðlífi.

Með beztu kveðjum / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 00:09

3 Smámynd: Gústaf Níelsson

Þegar Kohmeini erkiklerkur kom úr áratuga útlegð frá Frakklandi 1979 til þess eins að skjóta þjóð sinni rækilega aftur á miðaldir, léku leiðtogar Vesturlanda marga afleiki. Og það var ábyggilega afleikur líka að treysta stöðu Mohammad Reza Pahlevi eftir að lýðræðishugmyndir tóku að skjóta rótum í Persíu eftir seinna stríð. Þar réðu olíuhagsmunir mestu. Engin stofnun í Tyrklandi hefur eins mikil og rótgróin samskipti við Vesturlönd og herinn, þannig að engan skal undra þótt stjórnendur hans súpi hveljur, þegar stjórnmálamenn þar í landi hyggjast samtvinna veraldlegt vald og trúarbrögðin.

Gústaf Níelsson, 13.6.2007 kl. 00:44

4 identicon

Jú, jú... hefði átt að nefna Mossadegh heitinn, og hans ryckti.

Mbk. / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband