Leita í fréttum mbl.is

Loksins, loksins!!

Það voru gleðitíðindi að lesa að eigendur og útgefendur Morgunblaðsins skuli loksins hafa ákveðið að taka blaðið úr höndum vinstrimanna og endurreisa það sem málgang borgaralegs lýðræðis. Í alltof mörg ár hafði Morgunblaðið hrakist undan vindi slakrar ritstjórnar og uppgjafar gagnvart vinstrimönnum, sem voru farnir að setja svo sterkan svip á blaðið og efnistök og efnisval, að furðu sætti. 

Auðvitað var ekki við öðru að búast en að vinstrisinnaðir fjölmiðlamenn og aðrir úr þeim ranni, myndu reka upp vein, og bera eigendum blaðsins á brín ófagleg vinnubrögð (vinstrimenn halda að þeir séu öðrum mönnum faglegri) og þrönga sérhagsmunagæslu. En það er fjarri öllu lagi. 

Nú verður Mogginn fyrst faglegur!!


mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Hjá vinstrimönnum er "faglegt" ekki það sama í dag og og það var í gær. Þeir hafa tilhneigingu til að trúa að þeirra útgáfa að túlkun sé hin eina rétta. Kviklyndi þeirra gerir hins vegar kröfu til stöðugs undanhalds. Túlkunin færist til. 

En nú trúi ég að við fáum að sjá hvað felst í orðinu faglegur

Ragnhildur Kolka, 24.9.2009 kl. 21:43

2 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Sieg heil !

Gunnlaugur B Ólafsson, 24.9.2009 kl. 22:07

3 Smámynd: Gústaf Níelsson

Innræti þínu er alveg viðbrugðið, Gunnlaugur og smekkvísi ykkar vinstrimannanna er einstök. Vonandi þarf ekki að fjölga plássum á geðdeildum landsins vegna skyndilegrar fjöldataugabilunar "gáfumanna" á vinstrikantinum?

Gústaf Níelsson, 24.9.2009 kl. 22:32

4 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Jah, þú segir nokkuð. Ég sem var svo viss um að þú værir illa innrættur Gústaf!! Kanski er þetta allt saman misskilningur og menn ættu að tileinka sér það að tala saman á heilbrigðan hátt. Fjölmiðlar eru einmitt rétti vettvangurinn til að draga úr tortryggni meðal fólks, ef þeir njóta trausts og þeir búa yfir nægu svigrúmi fyrir ólíkar skoðanir. Ráðning Davíðs Oddssonar eykur ekki líkur á heillavænlegri samræðu meðal fólksins í landinu.

Gunnlaugur B Ólafsson, 24.9.2009 kl. 22:42

5 identicon

Nú skelfur þetta samspillingar komma og bauglið þegar Davíð og Agnes tekur á því.Til hamingju Ísland. 

Sæi (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband