Leita í fréttum mbl.is

Það er hvimleitt svifrykið

Að sönnu er það hvimleitt svifrykið einkum þegar í hlut á fólk sem er viðkvæmt fyrir því. Að vísu hef ég aldrei skilið hvers vegna þeir tiltölulega fáu einstaklingar, sem eru viðkvæmir, skuli velja sér búsetu nærri umferðarþungum götum. Kannski eru vinstrimenn viðkvæmari í öndunarfærunum en annað fólk, því ekki fæ ég betur séð en á mynd með fréttinni skarti hinn vellátni kommúnisti Guðmundur J. Guðmundsson (litli Jaki), sagnfræðingur og kennari sínu fegursta, þótt á bakvið grímu sé. Vonandi þjáist hann ekki af öndunarörðugleikum. Kannski er hann bara með félögum sínum í Vinstri grænum að berjast í þágu píndra og plagaðra af svifryki - að vísu í engri svifrykstíð.

En hvað með það. Menn verða að hafa áhrif á sitt nærumhverfi, ekki satt?


mbl.is Íbúar mótmæltu svifryksmengun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er einnig skrítið hvers vegna naggladekkjum er kent um svifrykið! jú jú einhvað kemur frá nögglunum en aðalega kemur það frá díselbílum en það má ekki minnast á það í þessu landi enda eru díselbílar heilagir hér!

Bara ég (IP-tala skráð) 21.10.2009 kl. 18:36

2 Smámynd: Baldur Hermannsson

Staðreynd, ryksallinn sem kemur frá díselbílum er 1000 sinnum smærri en sá sem kemur frá bensínbílum og smýgur því gegnum varnarmúra öndunarfæranna. Það eru ekki mörg ár síðan menn áttuðu sig á þessu.

Baldur Hermannsson, 21.10.2009 kl. 19:05

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sóðaskapur að þrífa ekki götur reglulega

Jón Snæbjörnsson, 21.10.2009 kl. 19:32

4 Smámynd: Baldur Hermannsson

Fólkið í þessum hverfum á bara að ganga með grímur eins og tíðkast í Japan og þykir sjálfsagt.

Baldur Hermannsson, 21.10.2009 kl. 19:42

5 Smámynd: Gústaf Níelsson

Svifryksmengun er ekki stórkostlegt vandamál í Reykjavík, kannski svipað og kattarofnæmi. Fólki hættir til að kjafta "vandamálin" upp í rjáfur. Ekki ósvipað hinu sameiginlega átaki femínista og lögreglu að kjafta meint mansal í hæstu hæðir, í eiginhagsmunaskyni. Svo fjármunir renni í stríðum straumi til varnarbaráttunnar, sem er trúlega engin.

Gústaf Níelsson, 21.10.2009 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband