Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Endaskiptin kveða sér hljóðs

Trúlega hefði þessi frétt Mogga aldrei ratað inní íslenska fjölmiðla nema vegna þess að sú sem bullar um hættulega menn og ber aðra stjórnmálaandstæðinga sína sökum um einræðistilburði, er enginn önnur en hin íðilfagra Eva Joly, sem starfar á ofurlaunum fyrir réttlætið á vegum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Þótt mikilvægt sé að réttvísin hafi sanngjarna og réttláta framrás, er líkt og að ráða ofdykkjumann til veislustjórnar í kúltíverðuðu afmælisboði, að leita til þessa kommúnista um ráðgjöf við framkvæmd á íslensku réttarfari.

Við blasir að þessi græningi (les:kommúnisti) er ekki að berjast fyrir bættu dómskerfi eða réttarkerfi í Evrópu. Miklu frekar berst hún fyrir endurreisn spænska rannsóknarréttarins, eða ógnarréttarfari af svipuðu tagi og lengst lifði í löndum kommúnista. Munu stjórnvöld leysa  landsmenn undan því að greiða þessum annars flokks lögfræðingi ofurlaun fyrir endalausan kjaftagang?


mbl.is Joly snuprar Sarkozy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirstéttin fundar

Yfirstétt kvenna (hin femíníska nómenklatúra) efndi til uppskeruhátíðar (les: hvítvínspartý) í Iðnó í kvöld. Tilefnið var fögnuður yfir þvi að konur sætu á alþingi sem aldrei fyrr, og að kona leiddi ríkisstjórnina. Mun það greiða úr vanda Íslands að sem flestar konur sitji á þingi? Örugglega ekki og fagnaðarlætin því lítt skiljanleg. Mun einhver fréttamaður spyrja hver greiddi reikninginn? Örugglega ekki. En ég sem fávís sjónvarpsáhorfandi (sjónvarpið lét sig ekki vanta) leit ótrúlega fámennan hóp yfirstéttarkvenna lepja vínföngin í "góðum félagsskap". Var kannski boðið á Bessastaði eftir Iðnó? Voru allar nýju alþingiskonurnar á staðnum?

Mun einhver fjölmiðlamaðurinn þora að kryfja þessa furðusamkomu til mergjar og grafast fyrir um kostnaðinn og hver greiðir? Trúlega ekki, en nú eru erfiðir tímar og atvinnuþref, eins og skáldið sagði.


mbl.is Velgengni kvenna fagnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunsæismaður mættur til starfa á alþingi?

Hvers vegna gengur Þór Saari ekki í annan hvorn stjórnarflokkinn, varla skortir samleiðina, hvorki fyrr né síðar. Hann getur tekið spenaskáldið og atvinnulausa skáldið með sér. Eftir situr unga konan af Suðurlandi og sjálfsagt veit ekki sitt rjúkandi ráð. Gæti hún hugsað sér framsókn? Sjálfstæðismenn myndu ábyggilega bjóða hana velkomna.

Ég ætla rétt að vona að ekki sé rétt eftir hinum nýja þingmanni haft, því ef hann heldur að traust ríki á milli stjórnarflokkanna um ESB-málin er hann ekki með réttu ráði.


mbl.is Afstaðan lýsir skilningsleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rökstuðninginn skortir nú samt félagi Össur

Það er að renna upp fyrir félaga Össuri, að formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ætla ekki að láta glepjast til að styðja á alþingi aðildarumsókn að ESB, sem gæfi honum umboð til að ráðskast með hagi Íslands suðrí Brussell næstu misserin. Stjórnarandstöðuflokkarnir munu auðvitað ekki ljá máls á því, þótt ýmsa þingmenn stjórnarandstöðunnar kunni að langa til að styðja umsókn. Ríkisstjórnin getur ekki treyst á stjórnarandstöðuna í svona mikilvægu máli; hún verður að stand heil og óskipt að umsókninni, eða falla ella.
mbl.is Rökstuðninginn skortir ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert umboð til umsóknar

Það er alveg ástæðulaust fyrir stjórnarandstöðuna að láta ríkisstjórnarflokkana stilla sér upp við vegg og liðka fyrir aðildarumsókn Íslands að ESB. Framkvæmdavaldið verður að standa heilshugar að ráðgerð um inngöngu í ESB, eigi eitthvað úr henni að verða. Annað er ótrúverðugt og álappalegt á alla kanta, auk þess sem mikilvægari málefni bíða úrlausnar stjórnmálamanna. Ekkert hengirúm er að finna fyrir Íslendinga í Brussell.

Þeir stjórnarandstöðuþingmenn, sem gjarnan vildu sækja um aðild að ESB geta ekki leyft sér þann lúxus að skera stjórnarflokkana niður úr þeirri ESB-snöru, sem þeir hafa brugðið um kverkar sér, vegna þess að þingið mun aldrei verða samningsaðilinn, heldur sundurþykkt framkvæmdavald. Það mun aldrei skila góðum árangri.


mbl.is Lítið um rök fyrir umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fornöldin er mætt til starfa.

Þess var ekki langt að bíða að þjóðin fengi að upplifa orsakasamhengi hlutanna eins og það blasir við kommúnistunum í ríkisstjórninni. Tannskemmdir barna stafa af ónógri skattheimtu gosdrykkja samkvæmt kokkabókum Ögmundar heilbrigðisráðherra. Hann gerir sér enga grein fyrir því að tannskemmdirnar stafa af ónógri tannhirðu barna. Af því að foreldrarnir sinna ekki tannhirðu barna sinna nægilega vel og leiðbeina þeim ekki nægilega þegar þau stálpast. Með öðrum öðrum orðum: Foreldrar vanrækja tannhirðuna, sem þátt í heilsu afkvæma sinna.

Nú er það alls ekki svo að öll eða flest börn hirði ekki um tennur sínar, en þau eru of mörg og það verður algerlega að skrifast á vanrækslu foreldranna, en ekki of lágan sykurskatt. Væri ekki ráð að koma af stað viðamiklu tannhirðuprógrammi í öllum leikskólum landsins? Þangað fara flest öll börn og láta þau bursta tennurnar eftir allar máltíðir í leikskólanum. Er slík aðgerð kannski of lítilfjörleg og léttvæg fyrir allt velmenntaða fagfólkið sem vinnur á þeim stofnunum?


mbl.is Tillaga um sykurskatt ótrúleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband