Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

Össur og landsölusamningarnir

Auðvitað var við því að búast að utanríkisráðherra Hollands myndi hringja í íslenskan starfsbróður sinn og þrýsta á um samþykkt alþingis á skuldbindingum, sem þjóðin getur ekki risið undir. Sjálf Evrópusambandsaðildin er undir, og hr. Verhagen veit vel hve Samfylkingin er veik fyrir Brussellvaldinu. Ef einhvern tíman í Íslandssögunni væri hægt að tala um landsölusamninga, þá er það núna. Ætlar Össur að standa fyrir mögnuðustu landsölusamningum Íslandssögunnar? Látum á það reyna.

Mér er sagt að eigendur Icesave reikninga í Hollandi hafi að stofni til verið velsett þotulið, sem hafi pólitísk áhrif í landinu og beiti nú ríkisvaldinu til að fá allt sitt til baka, og sætti sig ekki við þá staðreynd að græðgin hafi í reynd orðið því að falli. 

Er Össur kominn í vinnu fyrir þotulið Hollands og Bretlands á kostnað stritandi íslenskrar alþýðu?


mbl.is Þrýst á Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna ætlar áfram að trúa á jólasveininn

Fyrir ekki margt löngu sagði norski sjávarútvegsráðherrann að Íslendingar gætu allt eins trúað á jólasveininn eins og að gera sér vonir um varanlegar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu ESB. Nú liggur það fyrir að Jóhanna og meirihluti alþingis ætla að láta á það reyna hvort jólasveinninn sé til eða ekki, og síðan að láta þjóðina skera úr um það hvort jólasveinninn í Brussell sé góður og gjafmildur jólasveinn, eða ekki. Þjóðinni er greinilega ætlað að sitja uppi með Svarta-Pétur í þessu máli.

Ætli að pólitísku sirkusfíflin í Vg séu líka farin að trúa á jólasveininn? Þar á bæ virðast flestir vera ómerkingar og lygalaupar. Fróðlegt verður að fylgjast með loftfimleikum þeirra Steingríms og Ögmundar, þegar þeir fara að útskýra afstöðu sína fyrir eigin flokksfólki.


mbl.is Missti aldrei trúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veikar í viðtali

Illt er þegar fólk veikist og er frá vinnu í fáeina daga. Það hefur nú hent mæðgur, sem segja farir sínar ekki sléttar og mætti ráða af frétt mbl.is að lasleikann stafaði af slökum viðbúnaði heilbrigðisyfirvalda á Íslandi. Erfiðast þykir móðurinni að vera lasin heima og hugsa um enn veikari dóttur sína, samkvæmt fréttinni. Aumt er að enginn á vegum hins opinbera skuli nú ekki hafa getað litið til með mæðgunum í pestinni. Á þessu hlýtur að vera gerð bragarbót þegar pestin kemur með fullum þunga á landslýð með haustinu, ef spár ganga eftir.

Vonandi ná þær mæðgur hröðum bata, þótt ekki væri til annars en að vera vel upplagðar í viðtölum við fjölmiðlana. Er ekki rétt að ræsa út sumarleyfiskastljós vegna þessara óskapa?


mbl.is Mæðgur fárveikar af svínaflensu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látum þá segja honum upp!!

Steingrímur Jóhann er hægt en örugglega að breyta sér í pólitískt sirkusfífl og samfylkingin í einskonar samevrópskan kratískan landráðalýð, sem metur íslenskt þjóðerni, menningu og framtíðartækifæri einskis. Vinstri flokkarnir á Íslandi hafa breytt sér í undirlægjur, sem bugta sig og beygja fyrir samevrópska valdinu, sem hótar þeim öllu illu, en væntanlega á bak við tjöldin.

Gott þætti mér ef Íslendingarnir Steingrímur Jóhann og Árni Páll, myndu vilja vera svo vænir að upplýsa mig almúgamanninn, hvaða stjórnmálaleiðtogar Evrópu hafa hótað okkur öllu illu, og sett samninginn um evrópska efnahagssvæðið í uppnám, undirgöngumst við ekki Icesave-landráðin. Öllu hugsandi fólki er það dagljóst, að þjóðin rís ekki undir evrópska okinu.

Vonandi eru það ekki tímanna tákn að að vinstri flokkunum hafi tekist að selja Ísland undir erlenda áþján og kúgun um langan aldur undir leiðsögn, forustu og umboði hins geðþekka kommúnista Svavars Gestssonar.


mbl.is EES-samningurinn var í húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær eru menn of drukknir úti að aka?

Kærleiks- og velferðarfasismanum eru lítil takmörk sett. Auðvitað blasir það við að fólk, sem ekur um með 0,5 prómill af alkóhóli í blóði hefur ágæta stjórn á aksturslagi sínu og sumir jafnvel betur, en þeir sem hafa ekkert alkóhól látið inn fyrir sínar varir. Raunar hefur mér alltaf fundist hálfundarlegt að allir skuli geta fengið ökuréttindi, því sannleikurinn er sá að fjöldinn allur af bláedrú fólki er akandi um allar koppagrundir án þess að geta eða kunna það.

Væri kannski fjarri lagi að fólk gæti fengið að taka ölvunaraksturspróf og þannig aflað sér réttinda til að keyra með lítilræði af áfengi í blóðinu? Margt vitlausara er nú lagt til.


mbl.is Vilja lækka refsimörk vegna ölvunaraksturs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband