Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Ríkisstjórnin verður að víkja!!

Nályktina leggur af ríkisstjórninni langar leiðir og finna fleiri en Ögmundur óþefinn. Það er fjarri því eitthvert pólitískt áfall fyrir landið, þótt stjórnarmeirihlutinn haldi ekki, eins og þingflokksformaður Sf heldur. Þvert á móti yrði það pólitískt áfall fyrir landið ef almenningur þarf að sitja uppi með verklitla ríkisstjórn, sem ekki hefur þingstyrk til að taka á þeim málum sem taka þarf á.

Nú bíður maður bara eftir því að fleiri þingmenn í stjórnarliðinu fari að marka sér privat pólitíska vígstöðu, því óðum styttist í kosningar.


mbl.is Stjórnin stendur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur býr sér til vígstöðu

Ögmundi Jónassyni, heilbrigðisráðherra er orðið ljóst að ríkisstjórnin lifir ekki af Icesave-málið. Hann vill koma sér út úr ríkisstjórninni, þar sem hann vill ekki taka ábyrgð á óvinsælum, en óhjákvæmilegum niðurskurði á öllum sviðum opinbera kerfisins, og alls ekki axla ábyrgð á því oki sem Icesave-kúgunin mun leggja á herðar íslenskri þjóð. Er þá nokkuð annað eftir en að restin af ríkisstjórninni segi af sér og boðað verði strax til kosninga, AGS sendur heim til sín, þar sem hann er bara handrukkari fyrir Breta og Hollendinga, og draga til baka umsókn um aðild að ESB.

Getur það nokkuð orðið verra? Þetta er ótrúlega geðlaus ríkisstjórn, sem lætur bæði svokallaðar vinaþjóðir á Norðurlöndum, Breta og ESB, tukta sig til eins og ómálga barn, og kúga stjórnmálamenn til að samþykkja gerninga sem engir heilvita menn myndu láta yfir sig ganga gagnvart þjóð sinni. Þetta er óþolandi framkoma gagnvart smáþjóð, sem telur vart fleiri en 160.000 vinnandi sálir, og annað eins af börnum og gamalmennum.


mbl.is Ögmundur segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins, loksins!!

Það voru gleðitíðindi að lesa að eigendur og útgefendur Morgunblaðsins skuli loksins hafa ákveðið að taka blaðið úr höndum vinstrimanna og endurreisa það sem málgang borgaralegs lýðræðis. Í alltof mörg ár hafði Morgunblaðið hrakist undan vindi slakrar ritstjórnar og uppgjafar gagnvart vinstrimönnum, sem voru farnir að setja svo sterkan svip á blaðið og efnistök og efnisval, að furðu sætti. 

Auðvitað var ekki við öðru að búast en að vinstrisinnaðir fjölmiðlamenn og aðrir úr þeim ranni, myndu reka upp vein, og bera eigendum blaðsins á brín ófagleg vinnubrögð (vinstrimenn halda að þeir séu öðrum mönnum faglegri) og þrönga sérhagsmunagæslu. En það er fjarri öllu lagi. 

Nú verður Mogginn fyrst faglegur!!


mbl.is Davíð og Haraldur ritstjórar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband