Leita í fréttum mbl.is

Hvers eiga hundarnir að gjalda?

Það er eins gott að heilbrigðiseftirlitið stendur vaktina. Annar væri sko illt í efni. Gott er að hafa reglugerðirnar að vopni og beita þeim, svo hundarnir geti ekki skemmt sér á bíósýningum og farið sjálfum sér og öðrum að voða.

Vill einhver geta sér til um hvaða tjón, vá eða voði hefði getað skapast vegna bíóferðar kjölturakka? Bæði bíóeigandinn og eigendur hundanna voru alveg sammála um að gera hundunum glaðan dag. Engin verðlaun eru í boði fyrir rétt svar, en ég giska á að hér séu hagsmunir hundanna hafðir í fyrirrúmi. Er einhver með betra gisk? 


mbl.is Hundarnir máttu ekki koma í bíó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú átt að lúta sömu reglum um hundahald hvort sem þú átt sankti-bernard eða chiauahua hund..

Mér finnst óþolandi að sjá þegar fólk er að mæta með hundana út í banka, búðir eða aðra staði sem má ekki vera með hunda.

Vona að þessir smáhundar fari að detta úr tísku bráðum..

jón (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 17:14

2 Smámynd: Birgir Hrafn Sigurðsson

sammála

Birgir Hrafn Sigurðsson, 7.2.2009 kl. 17:22

3 identicon

Sammála

Þór (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 17:34

4 identicon

Ég er mikil dýravinur og á svo sérstakan og kláran kött að þið munduð ekki trúa því.  Mér finnst samt of langt gengið með þessu bíói fyrir hunda, skiptir engu máli af hvaða tegund þeir eru.  Hundar eru ekki menn, en mörgum dýraeigendum, sérstaklega hundaeigendum hættir til að gæða dýrin sín mannlegum eiginleikum.  Getur einhver sagt mér, HVAÐA ánægju hundur hefði af því að fara í bíó, sér er nú hver vitleysan.

Jónína (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 17:43

5 Smámynd: Gústaf Níelsson

Sérkennilegt hvað þið eru einum rómi um það að hundur sé hundur óháð því hvort hann sé af kyni heilags Bernharðs eða chiauahua og því skuli sömu reglur gilda um þá. En var einhver að bjóða Stóra Dana eða öðrum slefandi stórhundum í bíó? Er þetta eitthvert hundajafnréttismál? Má ég ekki bjóða Hófí í bíó ef ég vil ekki taka Gilitrutt með?

Umburðarlyndið er alltaf á flótta undan ímynduðum jafnræðisreglum 

Gústaf Níelsson, 7.2.2009 kl. 17:45

6 Smámynd: TARA

Mikið rétt, það gilda lög og reglur um hundahald og fólk á að virða það.

TARA, 7.2.2009 kl. 17:49

7 identicon

Fólk með ofnæmi gæti mætt í bíósalinn á eftir öllum þessum hundum og þá myndu þær manneskjur verða fyrir skaða. Þess vegna er mjög mikilvægt að farið sé að reglum um hundahald á stöðum sem eiga að vera öllum opnir t.d. verlsanir, bíósalir, sumarbústaðir (er reyndar hægt að leigja bústaði þar sem ´má vera með dýr).

Sonja (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 17:50

8 identicon

Ég skil nú ekki þessa hysteríu varðandi hunda hér á landi, sérstaklega þar sem hér er ekki að finna þessa alvarlegustu sjúkdóma sem geta smitast á milli manna og hunda. En þetta eru kannski leifar hræðslu vegna sullaveikinnar...

Úti í Gautaborg sér maður hunda út um allt, meðal annars í sporvögnunum.

Bella (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 17:56

9 identicon

En að því sögðu þá sé ég nú ekki alveg tilganginn með því fara með hunda í bíó... :)

Bella (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 18:03

10 Smámynd: Jóhann Pétur Pétursson

Ég spyr nú hreinlega, hvað er að í heilabúinu á fólki sem að ætlar með hundana sína í bíó? Þeim til hughreystingar þá held ég að hundarnir missi ekki af neinu því að ég stórefast um að hundarnir horfi á sýninguna.

Jóhann Pétur Pétursson, 7.2.2009 kl. 18:06

11 Smámynd: Haukur Viðar

Sonja hitti naglann á höfuðið með ofnæmið. Ofnæmisvaldurinn er í loftinu í marga daga á eftir og t.d. ég yrði fárveikur af því að fara í salinn, hversu vel sem hann hefði verið þrifinn.

Haukur Viðar, 7.2.2009 kl. 19:22

12 Smámynd: Kotik

Að fara í bíó með dýr er ein vitleysan, en að vera með þessa sakleysingja lausa í bílum við akstur, jafnvel í fanginu eins og sést stundum, finnst mér einkar heimskulegt og óþarfa ógn við samferðafólk í umferðinni.

Kotik, 8.2.2009 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband