9.10.2008 | 21:51
Að skjóta mús með fallbyssu.
Það er ekki uppá Bretana logið í samskiptum við "stórasta land í heimi". Alltaf svolítið ýktir þegar alvöru hagsmunir eru í húfi. Flest munum við öslandi herskip í íslenskri landhelgi, eiginlega út af engu, þegar öllu var á botninn hvolft. Ágreiningsefnin þá voru þeim í óhag og andstæð. Vinir okkar þá kenndu þeim að láta ekki illa við "litlasta landið" í Nato. En nú eigum við barasta enga vini og Bretarnir svo hundheppnir að vera búnir að setja lög um hryðjuverkavarnir. Hversu lágt geta þessir Samfylkingarmenn í Bretlandi lagst? Maður er hissa á því hvernig augljós misskilningur, eða tungumálaörðugleikar geta sett allt á annan endann í málum þar sem mikilvægt er að halda ró sinni.
Eigum við ekki bara að kenna Davíð Oddssyni um þetta allt? Háskólahagfræðingarnir vilja kenna honum um allt sem úrskeiðis hefur farið. Núna ræði ég efnahagsmál og viðbrögð við þrengingum við köttinn minn, því hann hefur ekki gefið síðri ráð en allt hagfræðingastóð greiningadeilda bankanna. Skyldu hinir nýju ríkisbankar þurfa á öllum þessum greiningardeildum að halda?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2012
- Október 2011
- September 2011
- Apríl 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Nóvember 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Apríl 2006
Bloggvinir
- jonvalurjensson
- axelaxelsson
- baldher
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- baenamaer
- carlgranz
- egill
- frjalshyggjufelagid
- gesturgudjonsson
- gudni-is
- duna54
- zeriaph
- halldorjonsson
- hannesgi
- blekpenni
- hildurhelgas
- astromix
- enoch
- johannst
- jonmagnusson
- kolbrunerin
- credo
- krist
- magnusthor
- martagudjonsdottir
- ragnhildurkolka
- fullvalda
- fullveldi
- siggileelewis
- valdimarjohannesson
- vey
- thjodarheidur
Athugasemdir
Til að gæta sanngirni í garð Breta verður nú ekki framhjá því litið að vissulega hafa sumir frá "stórasta landinu" kallað nokkurn fjárhagslegan harm yfir bara þónokkuð marga slíka í vikunni.
Hins vegar eru þeir stríðsmenn miklir í eðli sínu, skammt undir kurteislegu yfirborðinu -og þar að auki með umsetinn forsætisráðherra, sem hefur kannski himin höndum tekið að eignast "óvin", sem öllum öðrum er skítsama um og nota má því að vild til að bægja athyglinni frá sjálfum sér.
Hvort okkar menn lögðu þetta svo ekki upp í hendurnar á honum er önnur spurning.
Legg svo til að kötturinn þinn og tíkin mín myndi þjóðstjórn...
Hildur Helga Sigurðardóttir, 9.10.2008 kl. 22:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.