Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Er ógnarstjórn Steingríms J. og Ögmundar í vændum?

Auðvitað þarf Ögmundur Jónasson ráðherra dóms- og mannréttindamála ekki að undrast það að sveitarstjórnarmenn skuli hafa gengið út undir ræðu hans á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga, þar sem hann fjallaði um landsdóm og ákæruna á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins. Öllum er ljóst að ákæra á hendur Geir er af pólitískum toga og hefur ekkert að gera með afglöp eða vanrækslu í störfum hans. Pólitískir andstæðingar hans og Sjálfstæðisflokksins sáu sér leik á borði þar sem hann lá vel við höggi og gátu ekki látið tækifærið sér úr greip ganga. Úr því að búið var að kynda bálið varð að henda einhverjum á það. Og sannarlega var feitt á stykkinu, þegar fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins gat orðið eldsmaturinn.

Nú heimtar Ögmundur að sveitarstjórnarmenn kveiki elda og finni einhverja til að varpa á bálköstinn. Hvað gengur manninum til? Er hann að boða ógnarstjórn og eilíf réttarhöld gegn pólitískum andstæðingum sínum?

Það eru furðulegir kraftar sem hafa leysts úr læðingi við myndun hinnar tæru og hreinu vinstristjórnar á Íslandi, svo ekki sé meira sagt.


mbl.is „Ekki með neina sleggjudóma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að falla í freistni

Frá upphafi vega hefur verið reynt að kenna mannskepnunni að falla ekki fyrir freistingunum, gæta að dómgreindinni, vera sanngjarn í dómum og forðast hleypidóma og illgirni, en alltaf fellur þessi sama skepna á prófinu. Nú síðast meirihluti Alþingis, með því að leggja til að aðeins Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra verði stefnt fyrir landsdóm og það undir óljósum ákæruatriðum. Aðeins hársbreidd munaði að Árni Matthiesen fv. fjármálaráðherra yrði honum samferða. Öllu hugsandi fólki má vera ljóst að niðurstaða þingsins er aðeins af pólitískum toga og satt best að segja þykir mér meirihlutinn hugaður að ráða málum með þessum hætti.

En hvað veldur? Jú freistingin var of mikil. Pólitískur andstæðingur og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins lá svo vel við höggi að freistingin bar meirihluta þingmanna ofurliði. Sú ágæta og gamalkunna regla að kapp sé best með forsjá, fauk út í veður og vind. Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins ætluðu sér ekki að brenna af í dauðafæri.

Geir H. Haarde er ekki ákærður vegna afglapa og vanrækslu í starfi sínu sem forsætisráðherra - hann er ákærður vegna þess að hann var formaður Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Mál höfðað gegn Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiga bankar að vera í ríkiseigu?

Hún ætlar að verða lífsseig þessi sérkennilega umræða um að nauðsynlegt sé að rannsaka svokallaða einkavæðingu bankanna. Rannsókn á þessu er ekkert annað en pólitískur rannsóknarréttur. Það er ekkert náttúrulögmál að bankar skuli vera í höndum ríkisins (les: stjórnmálamanna), frekar en fiskimið, land, vatn eða verslun með vörur og þjónustu. Þetta er hins vegar pólitískt ágreiningsefni, og slíkur ágreiningur varðar ekki við lög.

Þótt illa hafi tekist til um rekstur bankanna eftir að þeir hurfu úr ríkiseigu, réttlætir ekki að horfið verði til fyrra eignarhalds.

Sannleikurinn er sá að rannsókn á einkavæðingu bankanna, úr því sem komið er, ætti að vera rannsóknarefni sagnfræðinga, en ekki pólitískra rétttrúnaðarmanna, fyrir utan þau ósköp að ágæt rannsókn hefur nú þegar farið fram af hálfu ríkisendurskoðunar.

Ef menn vilja rannsaka þessa einkavæðingu eitthvað frekar, væri réttast að Vg eða þá Sf setti sínar eigin rannsóknarnefndir á laggirnar eða bara kalli á "Roy til að róa liðið". Og þá fyrir eigin reikning. 


mbl.is Einkavæðing bankanna verði rannsökuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristalsnótt vinstri manna í aðsígi?

Stundum freistast menn, sem fara með pólitísk völd til þess að misnota þau og fara illa með þau. Neita að fylgja skráðum og óskráðum reglum mannlegs samfélags í því skyni að ná sér niðri á pólitískum andstæðingum sínum. Í þann fúla pytt er Vg að falla núna með fulltingi Samfylkingarinnar. Öllu hugsandi og velmeinandi fólki er ljóst að landsdómur er arfur fortíðar og ekki nothæfur til þess að koma lögum yfir þá valdsmenn sem misfara með vald eða eru taldir hafa tekið rangar ákvarðanir, sem skaða það samfélag sem þeim var trúað fyrir að stjórna í lýðræðislegum kosningum.

Allir þeir sem sátu í svokallaðri "Hrunstjórn" (þ.e. þeir sem komu að hinum raunverulegu ákvörðunum) hafa axlað pólitíska ábyrgð og horfið af vettvangi, nema Össur og Jóhanna. Nú gala þessir tveir hanar hæst á pólitíska skítahaugnum, ásamt Atla Gíslasyni og Lilju Mósesdóttur og telja sig þess umkomin að kveða upp pólitíska dauðadóma yfir mönnum og málefnum. 

Fróðlegt verður að fylgjast með því hvernig hin pólitíska hefnd verður útfærð af meirihluta Alþingis. Ég giska á að Geir H. Haarde og Árna Matt. verði stefnt fyrir landsdóminn (ef ekki dregnir þangað, svo notað sé vinsælt orðalag), sem er í reynd ekkert annað en galdrabrennudómstóll. Verði það ekki gert er hefndin ekki nógu sæt og sanniði til - þetta mun nást samstaða um hjá ríkisstjórnarflokkunum.

Svona tækifæri láta menn sér ekki úr greip ganga


mbl.is Telur ákæru standast mannréttindareglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Jón Gnarr pólitískt þroskaheftur?

Stundum er sagt að það sé tungunni tamast sem er hjartanu kærast. Því svaraði Jón Gnarr í pólitískri einfeldni sinni, aðspurður um netvenjur sínar af frönskum blaðamanni, að helst leitaði hann í klámsíðurnar, en sagðist hafa átt við fésbók og gúggl. Blaðamaðurinn áttaði sig ekki á græskulausum íslenskum heimabrúkshúmor borgarstjórans og fjandinn varð laus. Ekki endilega í útlöndum, heldur hér heima í fásinninu, þar sem sérstakir varðliðar gegn klámi og almennum dónaskap fólks í Femínistafélaginu og borgarstjórn tóku beinlínis bakföll af hneygslan. Jóni borgarstjóra var gert að stunda opinbera sjálfsgagnrýni og kynna sér femíníska sýn á klámiðnaðinn svokallaða, sem er ær og kýr hinnar femínísku hreyfingar, sem virðist vera uppfull af pempíulegum dónastelpum. Jón lofar bót og betrun og hugsar væntanlega grín sitt upp á nýtt. En hvers er að vænta af manni sem að eigin sögn er bæði haldinn athyglisbresti og Tourette. Hann mun því væntanlega halda áfram ótímabæru pólitísku gelti af allskonar tagi okkur hinum til óblandinnar gleði og skemmtunar.

Lakara verður þó að teljast ef ekki er hægt að koma brýnum málum á dagskrá borgarráðs og borgarstjórnar, vegna þess að borgarstjórinn þarf að stunda iðrun og yfirbót að kröfu femínískra klámkellinga með klám á heilanum.


mbl.is Gáfu Jóni heimildarmynd um áhrif kláms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilraunin mistókst

Íslendingar hafa að sönnu gert tilraunir í alþjóðasamskiptum og skapað sér nafn og virðingu. Þar er nærtækast að nefna frumherjastarf í þróun hafréttar. Allt var það starf unnið af framsýni og ágætum vitsmunum þeirra sem á héldu. Nú hefur algerlega ný tilraun verið gerð og ekki hefur henni beinlínis verið vel tekið utan landsteinanna, þótt hver fjölmiðlamaðurinn á fætur öðrum að minnsta kosti hér á landi reyni að bera í bætifláka fyrir hana. Það sýnir okkur aðeins hvað fjölmiðlarnir eru lélegir, en frjálsir frá allri innri gagnrýni og fullkomlega gagnrýnislausir á sjálfa sig. 

Var enginn embættismaður til í forsætisráðuneytinu eða utanríkisráðuneytinu, sem gerði sér grein fyrir því að lesbískur forsætisráðherra Íslands gæti ekki tekið maka sinn í opinbera heimsókn til útlanda, og allra síst til Færeyja? Það hefur engum forsætisráðherra í heiminum dottið þetta í hug, þótt samkynhneigður væri og engin er hún sjálfsagt til meðvirkari utanríkisþjónustan.

Það er auðvitað þekkt að ekki er hægt að senda forsætisráðherrann langt út fyrir landsteinana og fljótt á litið er aðeins hægt að senda hana í mesta lagi til Vestmanneyja eða Grímseyjar, þar sem býr gott og umburðarlynt fólk. Þegar litið er til hagsmuna Íslands út um víða veröld kann að vera ráð að ætla að veröldin sé ekki jafn samkynhneigð og yfirborð landsins kann að sýnast.

Ekki býð ég í Evrópuferð þeirra hjóna, eða er hún kannski í bígerð?

Orð mín falla ekki í reiði eða vegna skorts á umburðarlyndi gagnvart samkynhneigðum. heldur vegna þess að heimurinn hefur ekki sömu viðhorf og íslenska stjórnmála- og fjölmiðlastéttin. Himinn og haf skilja að þær stéttir og íslenska alþýðu almennt í svo mörgu nú um stundir. Svo ekki sé nú talað um heiminn almennt.

En hverjum má ekki vera sama?

 

 

 


mbl.is Danir blása Jenis-málið út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband