10.4.2009 | 01:43
Ógeðfelld aðför
Maður hefði nú haldið að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti á öllu öðru að halda en innanhússvígum tveimur vikum fyrir kosningar? Það er nú öðru nær. Ekki veit ég í hvaða logum, hvað þá stafna á milli, heimildarþingmaður netMogga úr Sjálfstæðisflokki er staddur. En hitt veit ég að hér er á ferðinni andstyggileg aðför að Guðlaugi Þór, gegnum og vinsælum þingmanni flokksins. Og eins og jafnan, þegar sótt er að mönnum renna slefandi hýenurnar í blóðslóðina. Ein þeirra er Ragnheiður Ríkharðsdóttir, samþingmaður Guðlaugs Þórs, sem vart má vatni halda af vandlætingu.
Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins þarf nauðsynlega að aga kjaftagleiðar tækifæriskerlingar flokksins.
Það logar allt stafnanna á milli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:28 | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2012
- Október 2011
- September 2011
- Apríl 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Nóvember 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Apríl 2006
Bloggvinir
- jonvalurjensson
- axelaxelsson
- baldher
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- baenamaer
- carlgranz
- egill
- frjalshyggjufelagid
- gesturgudjonsson
- gudni-is
- duna54
- zeriaph
- halldorjonsson
- hannesgi
- blekpenni
- hildurhelgas
- astromix
- enoch
- johannst
- jonmagnusson
- kolbrunerin
- credo
- krist
- magnusthor
- martagudjonsdottir
- ragnhildurkolka
- fullvalda
- fullveldi
- siggileelewis
- valdimarjohannesson
- vey
- thjodarheidur
Athugasemdir
Hafðu kjaftagleiða tækifæriskalla með í ögunar búðir formannsins - eins og Stefán Friðrik Stefánsson sem farið hefur mikinn af hástemmdri vandlætingar bræði á bloggsíðu sinni - og talið upp hægri - vinstri alla þá sem ættu að fjúka
Benedikta E, 10.4.2009 kl. 02:38
Sammála þér Gústaf og svo er hér -
ÁSKORUN TIL SJ'ALFSTÆÐISMANNA8.4.2009 | 23:48 - vonandi sýnir Samfylkingin sitt bókhald með öllu t.d. Baugsgreiðslum sem og Jóns Ólafssonar "framlögin".ÁSKORUN TIL SJÁLFSTÆÐISMANNA - TÖKUM HÖNDUM SAMAN OG GREIÐUM HVERT UM SIG KR. 5.000.- Í STYRKTARMANNAKERFIÐ - TIL VIÐBÓTAR ÞVÍ SEM VIÐ GREIÐUM VENJULEGA. LÍKA ÞIÐ SEM ERUÐ EKKI INNI Í STYRKTARMANNAKERFINU NÚ ÞEGAR.10.000 MANNS - 50 MILLJÓNIR - MÁLIÐ LEYST.20.000 MANNS - 100 MILLJÓNIR - OG ALLT Í GÓÐUM GÍR.Ólafur I HrólfssonÓlafur I Hrólfsson (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 05:03
Ég tek undir með þér Benedikta, munnræpan í Stefáni Fr. er fullþunnfljótandi, en hann er ekki samþingsmaður Guðlaugs Þórs.
Ég tek undir með þér Ólafur. Auðvitað munum við hinir betri og góðgjarnari flokksmenn hringinn í kringum landið leggja flokknum til aukaframlag svo komast megi út út þessum leiðendum.
Gústaf Níelsson, 10.4.2009 kl. 11:24
Það er merkilegt Gústaf að upplifa hvernig sumir Sjálfstæðismenn hafa bognað fyrir "ófrægingar-herferð" Samfylkingarinnar. Jafnvel sumir þingmenn flokksins láta blekkjast með þessari "smjörklípu-aðferð" (smear campaign).
Loftur Altice Þorsteinsson, 10.4.2009 kl. 11:57
Þetta er rétt hjá þér Loftur og þar fara fremst þeir þingmenn og þingmannsefni, sem laðast ekki sérstaklega að flokknum vegna hugsjóna hans, heldur vegna þess að flokkurinn er gott "vörumerki" í stjórnmálum.
Gústaf Níelsson, 10.4.2009 kl. 13:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.