10.4.2009 | 19:43
Ætlaði flokkurinn ekki að njóta?
Hún er hálfaulaleg vörn Kjartans Gunnarssonar fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins í styrkveitingamálinu. Ætlaði flokkurinn ekki að njóta fjárins, ef ekki hefði orði opinbert um tilvist þess? Hann þrætir eins og barn, sem staðið hefur verið að því að brjóta gluggarúðu. Hann iðkar þá list að þræta fyrir sannleikann, þótt hægt sé að reka hann beint ofaní kokið á honum, og skiptir þá litlu hvort það er í smáu eða stóru, eins og nú er. Ágætis dreng eins og Andra Óttarssyni, er fórnað, eins og bakara fyrir smið. Reynt verður að fórna dugmiklum þingmanni, Guðlaugi Þór Þórðarsyni í leiðinni. Slík fórn flokkast sem hreinsunarstarf í sumra hugum að teknu tilliti til þess að flokkurinn mun fara illa í næstu kosningum hvort sem er.
Má ég giska á að leitað verði til Ásdísar Höllu Bragadóttur um að taka við framkvæmdastjórn Sjálfstæðisflokksins innan tíðar.
Upplýsir ekki hverjir leituðu styrkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:55 | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2012
- Október 2011
- September 2011
- Apríl 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Nóvember 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Apríl 2006
Bloggvinir
- jonvalurjensson
- axelaxelsson
- baldher
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- baenamaer
- carlgranz
- egill
- frjalshyggjufelagid
- gesturgudjonsson
- gudni-is
- duna54
- zeriaph
- halldorjonsson
- hannesgi
- blekpenni
- hildurhelgas
- astromix
- enoch
- johannst
- jonmagnusson
- kolbrunerin
- credo
- krist
- magnusthor
- martagudjonsdottir
- ragnhildurkolka
- fullvalda
- fullveldi
- siggileelewis
- valdimarjohannesson
- vey
- thjodarheidur
Athugasemdir
Heill og sæll; Gústaf !
Er þitt fólk; ekki að uppskera, eins og það hefir sáð til ?
Auðvitað; er jafnhæglátum manni, sem Andra Óttarssyni varpað fyrir róða; svo FÚARAFTARNIR : Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - Illugi Gunnarsson (Sjóða-Illugi) og Guðlaugur Þór Þórðarson, rellukjóinn úr Borgarnesi, fá að uppljóma áfram, heimsku sína sem froðusnakk allt !
Hver var svo; að tala um blaður og þvaður og hræsni Samfylkingar forarvilpunnar, Gústaf minn ? Jú; nákvæmlega, við báðir, ég og þú, við hin ýmsu tækifæri - bæði hér á síðum, sem víðar - af marggefnum tilefnum, líkast til.
Hræsnin; fer aldrei, í flokkslita álit, sagnfræðingur og gamli góði fræðaþulur; Gústaf Níelsson.
Sýnum raunsæi - gamli vopnabróðir; ýmissa sviða, og hvet ég þig til að hóa saman; raunverulegum íhaldsmönnum, hins gamla skóla, og endurreisið,, annnan hinna gömlu stofna, hins morknaða og fallandi Sjálfstæðisflokks. Það eru; mín heilræði, ykkur til handa.
Með; hinum beztu kveðjum, sem jafnan, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 20:03
Sæll Gúðsti frá gömlum skólabróður í HÍ.
Erum við ekki orðnir ansi þreyttir á þessu tjáningarformi sem er gróðarvinsælt meða sjálfstæðisflokksmanna. Orðið koma svona út úr fólkinu: Égveit um kjarna málsins. En segi ekki neitt. Sannleikurinn mun koma síðar í ljos.
Davíð Oddsson virðist hafa fundið þessa tjáninur upp. Eða Styrmir Gunnarsson sem notaðí þetta í öðru hvor Reykjavíkurbréfi. Núna Kjartan???
Hvernig væri að þið hættuð þessi. Segðuð bara frá.
kveðja
Sigmar Þormar
Sigmar Þormar (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 20:14
Var einhver hér að spá - einhverju um Ásdísi einhverja Höllu?
Þá þoli ég ekki meir!
Haldið þið að flokkurinn sé að klofna..............?
Benedikta E, 10.4.2009 kl. 20:24
Er ekkert inní þessu en held að Andra sé fórnað eða hann fórni sér(þá er hann meiri) Flokkurinn getur varla grætt á þessu? Þótt við kjósendur höfum flest gullfiskamynni(mjög stutt)
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 11.4.2009 kl. 02:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.