23.11.2009 | 21:58
Stjórnmálaelítan viðrar sig
Mikið var ég ánægður að lesa frétt þess efnis að Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur Joð, ásamt auðvitað varaformanni Sjálfstæðisflokksins, smæsta lögreglustjóra landsins, skáldum og rithöfundum, ætlaði að viðra sig á miðvikudagskvöldið næstkomandi í baráttunni gegn því sem kallað hefur verið "kynbundið ofbeldi", sem er eiginlega orðin árleg athöfn og fjölmiðlasirkus á Íslandi, þar sem ofstækiskellingarnar í Femínistafélaginu, Stígamótum og Kvennaathvarfinu geta látið ljós sitt skína og hertekið fjölmiðla landsins algerlega, þótt ekki væri nema dagstund.
Að sönnu ber réttarríkinu að berjast gegn ofbeldi og koma lögum yfir ofbeldismenn, af báðum kynjum. Ekki verður betur séð en að það hafi gengið ágætlega, eigi karlar í hlut, en lakar séu konur gerendur. Stafar það af því að karlkyns fórnarlambið vill síður að konum sé refsað. Og dómarar taka því vel af ótta við hina femínísku hreyfingu. Svokölluð "heiðursmorð" og kynfæralimlestingar eru ekki vandamál á Vesturlöndum, nema meðal múslima. En í nafni fjölmenningarhyggju láta vinstrimenn það liggja á milli hluta og fallast á gengdarlaust ofbeldi gagnvart múslimakonum og reyna að þegja vandann í hel, til þess að þóknast hugmyndafræði fjölmenningarinnar.
Þetta peningaplokk hatursfullra hreyfinga ofstækiskellinga, sem er orðinn árviss viðburður, þegar alþingi er að fjalla um fjárlög ríkisins, er komið út yfir öll velsæmismörk, einkum og sér í lagi þegar bæði forsætisráðherrann og fjármálaráðherrann eru farin að þramma með hinum gráðugu, sem gera út á veikgeðja stjórnmálamenn.
Jóhanna leiðir ljósagöngu á miðvikudag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:11 | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2012
- Október 2011
- September 2011
- Apríl 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Nóvember 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Apríl 2006
Bloggvinir
- jonvalurjensson
- axelaxelsson
- baldher
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- baenamaer
- carlgranz
- egill
- frjalshyggjufelagid
- gesturgudjonsson
- gudni-is
- duna54
- zeriaph
- halldorjonsson
- hannesgi
- blekpenni
- hildurhelgas
- astromix
- enoch
- johannst
- jonmagnusson
- kolbrunerin
- credo
- krist
- magnusthor
- martagudjonsdottir
- ragnhildurkolka
- fullvalda
- fullveldi
- siggileelewis
- valdimarjohannesson
- vey
- thjodarheidur
Athugasemdir
Já mikið er ég sammála þér Gústaf. Þetta er orðið alveg yfirgengilegt hvernig sumir þrýstihópar vaða orðið hér uppi með stjórnmálamenn í handjaðrinum.
Maður hefur tekið eftir því að ýmis þrýstisamtök hafa orðið óhugnanleg völd í samfélaginu. Þau virðast hafa óeðlilega opin aðgang að fjölmiðlum, skólakerfinu, þinginu og oft á tíðum gæti maður haldið að takmarkið sé fullur aðgangur að stjórnartaumum framkvæmdavalds, löggjafarvalds og dómsvald ef marka má aðferðafræði og vinnubrögð þessara hópa í samfélaginu eins og ég hef skilið þau.
Eiginlega líður mér orðið eins og ég lifi í landi sem stjórnað er af þrýstihópum sem ekki hafa umboð til verksins. Hversu óhugnanlegt er það?
Kristján (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 23:07
Þú hefur rétt að mæla Kristján. Vandinn er sá að allir er skíthræddir við þessar ofstækiskellingar, sem hafa hreiðrað um sig mjög víða í stofnunum samfélagsins ( en ekki á meðal verkafólks og stritandi alþýðu), þar sem það krefst skattpeninga til að stunda áhugamál sín. Það versta er að fjölmiðlarnir eru eins og tuskudúkkur í höndunum á þessum brussum og hvorki þora að æmta né skræmta af ótta við að hafa farið út af rétttrúnaðarsporinu, og stjórnmálamennirnir eru eins og óttaslegnir gíslar, sem vart þora öðru en að vera sammála síðasta ræðumanni. Er nema von að margir séu opinmynntir?
Gústaf Níelsson, 23.11.2009 kl. 23:37
Ætli þau skötuhjúin geti ekki gert okkur hinum greiða og gengið í sjóinn?
Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 25.11.2009 kl. 00:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.