Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
1.11.2007 | 23:55
Fyrir hverja er Skálholt?
Umhverfisstofnun varð sem felmtri slegin um daginn, að geta ekki með lögin að vopni hindrað að forráðamenn þjóðkirkjunnar, beinlínis fyrirgerðu menningarsögulegu gildi Skálholtsstaðar, með þeim ráðagerðum að skipuleggja hóflega frístundabyggð í grenndinni. Sérkennilegt verður að teljast hve blúndubolsum samtíðar okkar hrýs hugur við því að hinn sögufrægi staður skuli gæddur mannlífi að nýju. Á meðan Umhverfisstofnun bíður eftir lögunum, sem hún þarf svo sárlega að fá, til þess að geta forðað menningarsögulegum slysum (eins og það sé beinlínis á hennar könnu), kalla fjölmiðlar fram gamlar afturgöngur hinna sósíalísku gáfnaljósa úr klerkastétt til þess að vara við og lýsa áhyggjum, svo ekki sé nú minnst á orðaleppinn að ekki sé rétt að málum staðið. Skálholt var öldum saman allt í senn geistleg og veraldleg valdastofnun, menntasetur og vettvangur pólitískra ályktana, eins og Skálholtssamþykkt frá 1375 ber ljósan vott um. Skyldi mikið tjón hljótast af því að glæða mannlíf á staðnum til mikilla muna með frístundabyggð, jafnvel þótt kirkjan myndi bera fjárhagslega svolítið úr bítum? Svari hver fyrir sig.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.11.2007 kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2012
- Október 2011
- September 2011
- Apríl 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Nóvember 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Apríl 2006
Bloggvinir
- jonvalurjensson
- axelaxelsson
- baldher
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- baenamaer
- carlgranz
- egill
- frjalshyggjufelagid
- gesturgudjonsson
- gudni-is
- duna54
- zeriaph
- halldorjonsson
- hannesgi
- blekpenni
- hildurhelgas
- astromix
- enoch
- johannst
- jonmagnusson
- kolbrunerin
- credo
- krist
- magnusthor
- martagudjonsdottir
- ragnhildurkolka
- fullvalda
- fullveldi
- siggileelewis
- valdimarjohannesson
- vey
- thjodarheidur