19.2.2010 | 17:37
Hvað er uppbyggileg lausn?
Stundum tala stjórnmálamenn eins og véfrétt og slungið kann að vera að ráða í merkingu orða þeirra. Nú er það nýjasta að tala um uppbyggilega lausn á Icesave deilunni. Veit einhver hvað það þýðir? Ekki veit ég það, en held að það hafi eitthvað með það að gera að íslenskir skattgreiðendur borgi fyrir það fljótræði breskra og hollenskra stjórnmálamanna að greiða innistæðueigendum landa sinna tjónið sem þeir urðu fyrir er einkabankinn Landsbanki Íslands féll í trausti þess að hægt væri að senda reikninginn til Íslands. Sannleikurinn er sá að fall Landsbanka Íslands, þrátt fyrir nafnið, er bara alls ekkert á vegum Íslands og þess fólks sem greiðir skatta til íslenska ríkisins.
Breskir og hollenskir stjórnmálamenn verða bara að súpa seiðið af fljótfærni sinni. Ég og mín fjölskylda viljum ekkert hafa með það að gera að uppbyggileg lausn Icesave deilunnar felist í því að greiða skuldir óreiðumanna í útlöndum. Flest eigum við fullt í fangi með okkar eigin, eða er það ekki?
Vilja finna uppbyggilega lausn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2012
- Október 2011
- September 2011
- Apríl 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Nóvember 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Apríl 2006
Bloggvinir
- jonvalurjensson
- axelaxelsson
- baldher
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- baenamaer
- carlgranz
- egill
- frjalshyggjufelagid
- gesturgudjonsson
- gudni-is
- duna54
- zeriaph
- halldorjonsson
- hannesgi
- blekpenni
- hildurhelgas
- astromix
- enoch
- johannst
- jonmagnusson
- kolbrunerin
- credo
- krist
- magnusthor
- martagudjonsdottir
- ragnhildurkolka
- fullvalda
- fullveldi
- siggileelewis
- valdimarjohannesson
- vey
- thjodarheidur
Athugasemdir
Ef ég hugsa þetta einfalt þá er það alveg augljóst að það eru Bjöggarnir og þeir sem áttu bankann eiga að borga þetta. Hverja krónu. Þessir menn eru bara aldrei nefndir á nafn í þessu samhengi. B Thor ætlar að fara að fjárfesta á Suðurnesjum. En þetta er víst ekki svona einfalt.
Finnur Bárðarson, 19.2.2010 kl. 17:41
Er þá ekki rétt að Bretar og Hollendingar snúi sér til "Bjögganna" eins og þú kallar þá feðga, Finnur, frekar en íslenskra stjórnvalda?
Gústaf Níelsson, 19.2.2010 kl. 17:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.