11.3.2009 | 21:57
Hvalrekinn Eva Joly
Það var nú aldeilis lán í óláni að hana Evu skylda hafa rekið á fjörur okkar Íslendinga. Hvílíkur hvalreki, Íslands óhamingju verður þá ekki allt að vopni. Það er engu líkara en að guð almáttugur hafi hafi snert íslenska jörð, slík er hrifningin og mikils er að vænta. Það er ekki ónýtt að fá að njóta alþjóðlegra sambanda rannsóknardómarans, enda vart að vænta að íslenskir saksóknarar, sem eru ekkert nema sveitakallar í samanburði við fransknorska djásnið, með ullarlagðana í rassgatinu, ráði við það að setja sig í samband við umheiminn.
Hún ætlar seint að yfirgefa okkur Íslendinga minnimáttarkenndin gagnvart útlendingum. Getur einhver í nafni upplýsingar og gagnsæis sagt okkur lúsugum almúgaskrílnum hvað erlendu samböndin hennar Evu munu kosta okkur í evrum talið?
Hægt að nýta sambönd Joly | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2012
- Október 2011
- September 2011
- Apríl 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Nóvember 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Apríl 2006
Bloggvinir
- jonvalurjensson
- axelaxelsson
- baldher
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- baenamaer
- carlgranz
- egill
- frjalshyggjufelagid
- gesturgudjonsson
- gudni-is
- duna54
- zeriaph
- halldorjonsson
- hannesgi
- blekpenni
- hildurhelgas
- astromix
- enoch
- johannst
- jonmagnusson
- kolbrunerin
- credo
- krist
- magnusthor
- martagudjonsdottir
- ragnhildurkolka
- fullvalda
- fullveldi
- siggileelewis
- valdimarjohannesson
- vey
- thjodarheidur
Af mbl.is
Fólk
- Herra Hnetusmjör fagnar átta árum edrú
- Katrín prinsessa laumaðist á fund í Windsor-kastala
- Endurgerði þekkt kvikmyndaveggspjald buxnalaus
- Liam Payne borinn til grafar
- Elton John mætti allnokkrum kílóum léttari
- Fyrrverandi Playboy-kanína fær ekki aðgang að stefnumótaforriti
- Jarðarför Liams Payne í dag
- Vaknar grátandi af söknuði um miðjar nætur
- Náði botninum við dánarbeð ömmu sinnar
- Aldís Amah með hlutverk í Hallmark-jólamynd
Viðskipti
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
- Óttast að fólk fari aftur að eyða peningum
- Innherji: Frekari uppsagnir en nú tveir forstjórar
- Eigið fé er dýrasta fjármögnunin
- Skoða skráningu á Norðurlöndum
Athugasemdir
Ég held að þetta hafi ekkert með minnimáttarkennd að gera...konan er einfaldlega mjög hæf og skynsöm og býr yfir mikilli reynslu og þekkingu, er yfirveguð og þekkt fyrir heiðarleika.
HvAð hún kostar, er kannski ekki aðalspurningin núna...heldur hvor hún getur leitt okkur í gegnum þetta og þá er það hverrar krónu virði.
TARA, 11.3.2009 kl. 22:11
haha já, ég las þetta hjá þér og mér datt óvart í hug þýska löggan sem kom hingað til að leysa Geirfinns og Guðmundarmál.
Ég veit annars ekkert um þessa konu en vona að málin verði grafin upp og skoðuð
Ragnheiður , 11.3.2009 kl. 22:19
Þetta lagast Gústaf, þetta lagast. Hún er nú ekki farin að gera neinn óskunda ennþá. Kannski finnst ekkert. Vonum að allt blessist. Reynum að vera jákvæðir og hlakka til páskanna. Ekki leggjast í þunglyndi.
Árni Gunnarsson, 11.3.2009 kl. 22:23
Ágæta Tara. Það er til fjöldi Íslendinga sem eru hæfir, skynsamir, reynslumiklir og digrir af þekkingu, yfirvegum og heiðarleika. Vel kann það að vera að evrópskir pensjónistar virki vel (er hún kannski ekki komin á pensjón?) við rannsókn á örlögum Íslands. Þýski pensjónistinn Karl Schultz (hét hann það ekki Ragnheiður?) skoraði nú engin mörk í Guðmundar- og Geirfinnsmálum, en tók þó aukanúmer í morðmáli, sem kom upp meðan á dvöl hans stóð. Ekki misskilja mig dömur, ég vil rannsaka fall Ísland til enda og refsa sekum mönnum. En ég vil ekki búa til íslenskt "Banka-Guantanamo", þar sem reglum réttarríkisins er ýtt til hliðar, jafnvel þótt freistandi sé.
Gústaf Níelsson, 11.3.2009 kl. 22:35
Þú gætir kannski sagt okkur ágæti Gústaf hvað það myndi kosta okkur í evrum ef við nýttum okkur ekki aðstoð hennar? Þetta er alþjóðlegt mál, gríðarlega stórt að umfangi. Við höfum ekki reynslu hér til að takast á við málið. Því miður. Hún hefur það. Og á track record að baki sem er virðingarvert. Þess vegna er fólk að mæra hana. Ekki gamla góða minnimáttarkenndin. Sem er reyndar kapitúli út af fyrir sig.
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 23:26
Ég veit ekki frekar en nokkur annar hver kostnaðurinn er af því að nota ekki Evu Einar sæll, en ég vil fá að vita hver kostnaðurinn er af því að nota hana. Ertu ósammála mér um það?
Gústaf Níelsson, 11.3.2009 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.