Leita í fréttum mbl.is

Óvinir að lögum eða löglegir óvinir?

Sé fréttin rétt og nákvæm er ekki öll vitleysan eins. Kunni Bush-stjórnin ekki að nefna óvini sína réttum nöfnum? Er mikill munur á "óvina stríðsmönnum" og óvinum "samkvæmt alþjóðlegum lögum um stríð"? Er hér á ferðinni grundvallarstefnubreyting bandarískra stjórnvalda eða hefðbundið fíflarí stjórnmálamanna, sem vilja koma sér í mjúkinn hjá síðasta ræðumanni?
mbl.is Hætta að nota hugtakið „óvina stríðsmenn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að nefna þá enemy combatants eða óvina stríðsmenn í staðinn fyrir óvinahermenn var gert til þess að komast í kringum Genfarsáttmálann.  Þegar þú ert enemy combatant ertu hvorki hermaður eða ríkisborgari og ert utan verndar allra laga og þá er hægt að gera nánast hvað sem er við þig. 

Lagaklækir hjá Bush sem Obama vill greinilega ekki standa í, núna eru stríðsfangarnir nefndir réttu nafni og fá þann rétt sem þeim ber.

Jón H. Þórisson (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 23:35

2 Smámynd: Gústaf Níelsson

Það er stundum óljóst Jón hvort menn eru óvina stríðsmenn eða óvina hermenn. En þetta er formgerð og lögfræði hernaðar, sem er ný af nálinni, því nú eiga menn í stríði við hreyfingar og félagasamtök, fremur en ríki. Óvinurinn er óljós, að forminu til, þótt hann sé af holdi og blóði.

Þarftu einhverja lögfræði til að skilja hver er óvinur þinn?

Gústaf Níelsson, 14.3.2009 kl. 00:00

3 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Kvitt

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 14.3.2009 kl. 00:43

4 identicon

Nei, það þarf enga lögfræði til þess.

En þessi enemy combatant hentar vel til að komast í kringum lög.

Það er í rauninni rangt að þýða combatant sem stríðsmaður.  Orðið warrior þýðir stríðsmaður.  Stríðsmaður berst ekki fyrir löglegann eða formlegann her.  Stríðsmaður er einstaklingur sem er þjálfaður eða hefur reynslu af vopnuðu stríði (yfirleitt óskipulögðum) eða átökum fyrir hópa eins og t.d. frumbyggja, hryðjuverkasamtök eða óformlegann her. Genfarsáttmálinn gæti hugsanlega verndað hann.

Combatant er óþjálfaður einstaklingur sem tekur þátt í átökum hann er hvorki stríðsmaður eða hermaður og tilheyrir ekki neinum löglegum eða formlegum her en gæti tilheyrt t.d. glæpaklíku eða verið fótboltabulla (hooligan).  Gæti verið áflogahundur sem finnst gaman að taka þátt í óeirðum og slagsmálum.  Sem sagt ekki verndaður af Genfarsáttmálanum.  Um það snýst málið.  Þ.e. að kalla hermann eða stríðsmann eitthvað annað en hann er til þess að geta sneitt hjá Genfarsáttmálanum.

Jón H. Þórisson (IP-tala skráð) 14.3.2009 kl. 02:47

5 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

_______________________________________ 

Nú er spurningin þessi; Hverjir eru hryðjuverkamenn, stíðsmenn o.s.frv., o.s.frv.

Var ekki foringi uppreisnarmanna í henni Norður Ameríku Georg Washington hryðjuverkamaður ásamt sínum kónum sem hófu "óleglega" uppreisn gegn "löglegum" stjórnendum landsins? 

Ég segi bara si svona.

Kveðja, Björn bóndi  

Sigurbjörn Friðriksson, 14.3.2009 kl. 03:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson
Er andvígur hvers kyns gervilýðræði og lýðskrumi stjórnmálamanna, óháð flokkum.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband