14.7.2009 | 01:21
Látum þá segja honum upp!!
Steingrímur Jóhann er hægt en örugglega að breyta sér í pólitískt sirkusfífl og samfylkingin í einskonar samevrópskan kratískan landráðalýð, sem metur íslenskt þjóðerni, menningu og framtíðartækifæri einskis. Vinstri flokkarnir á Íslandi hafa breytt sér í undirlægjur, sem bugta sig og beygja fyrir samevrópska valdinu, sem hótar þeim öllu illu, en væntanlega á bak við tjöldin.
Gott þætti mér ef Íslendingarnir Steingrímur Jóhann og Árni Páll, myndu vilja vera svo vænir að upplýsa mig almúgamanninn, hvaða stjórnmálaleiðtogar Evrópu hafa hótað okkur öllu illu, og sett samninginn um evrópska efnahagssvæðið í uppnám, undirgöngumst við ekki Icesave-landráðin. Öllu hugsandi fólki er það dagljóst, að þjóðin rís ekki undir evrópska okinu.
Vonandi eru það ekki tímanna tákn að að vinstri flokkunum hafi tekist að selja Ísland undir erlenda áþján og kúgun um langan aldur undir leiðsögn, forustu og umboði hins geðþekka kommúnista Svavars Gestssonar.
EES-samningurinn var í húfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2012
- Október 2011
- September 2011
- Apríl 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Nóvember 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Apríl 2006
Bloggvinir
- jonvalurjensson
- axelaxelsson
- baldher
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- baenamaer
- carlgranz
- egill
- frjalshyggjufelagid
- gesturgudjonsson
- gudni-is
- duna54
- zeriaph
- halldorjonsson
- hannesgi
- blekpenni
- hildurhelgas
- astromix
- enoch
- johannst
- jonmagnusson
- kolbrunerin
- credo
- krist
- magnusthor
- martagudjonsdottir
- ragnhildurkolka
- fullvalda
- fullveldi
- siggileelewis
- valdimarjohannesson
- vey
- thjodarheidur
Athugasemdir
Góður Gústaf!
Ívar Pálsson, 14.7.2009 kl. 20:24
Ívar, hvað þarf til svo að Evrópa átti sig á því að Ísland getur ekki greitt það sem upp er sett? Það er engu líkara en við séu stödd í einhverju fáránleikaleikhúsi og aðalleikararnir eru Steingrímur J., Jóhanna Sig., og Svavar Gestsson. Ber okkur að treysta þessu þríeyki fyrir íslenskum hagsmunum? Svari hver fyrir sig.
Gústaf Níelsson, 14.7.2009 kl. 21:43
...bugta sig og beygja fyrir samevrópska valdinu, sem hótar þeim öllu illu
(?) Hvaða hótanir ertu að tala um?
...þjóðin rís ekki undir "evrópska okinu"
(?) Fáum við skýringar Gústi?
kv. almúgakona
Marta B Helgadóttir, 17.7.2009 kl. 11:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.