11.8.2009 | 23:55
Ögmundur mun lúffa
Þau eru sérkennileg leikritin sem sett eru á svið núna. Vg reynir að halda uppi stjórnarandstöðu í Icesave-málinu með Ögmund í fylkingarbrjósti, á meðan Steingrímur ástundar pólitíska ástarfundi með Jóhönnu. Telja á þjóðinni trú um það að hagsmunir hennar liggi í því að ganga í ESB, eða lenda handan "Járntjalds" að öðrum kosti. Vg stundar hálfhallærislegar stöðutökur í hagsmunamálum lands og þjóðar í því skyni að sitja sem lengst í ríkisstjórn.
Er ekki rétt að boða til nýrra kosninga, sem fyrst?
Fjölmenni á félagsfundi VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2012
- Október 2011
- September 2011
- Apríl 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Nóvember 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Apríl 2006
Bloggvinir
- jonvalurjensson
- axelaxelsson
- baldher
- bjarnihardar
- bjarnimax
- gattin
- baenamaer
- carlgranz
- egill
- frjalshyggjufelagid
- gesturgudjonsson
- gudni-is
- duna54
- zeriaph
- halldorjonsson
- hannesgi
- blekpenni
- hildurhelgas
- astromix
- enoch
- johannst
- jonmagnusson
- kolbrunerin
- credo
- krist
- magnusthor
- martagudjonsdottir
- ragnhildurkolka
- fullvalda
- fullveldi
- siggileelewis
- valdimarjohannesson
- vey
- thjodarheidur
Athugasemdir
Kanski vantar bara þessu ágæta fólki stuðning frá sinni þjóð! Sameinuð stöndum við og sundruð föllum við. það eru gömul og ný sannindi.
Til hvers eigum við að kjósa upp á nýtt með svo sundraða þjóð? það kostar bara enn fleiri á alls konar rugl-launum sem skilar bara skoðunum ósáttra ekki-hugsjónarmönnum og konum!
Ég vil ekki að mínar fáu skattkrónur fari í meira slíkt rugl. Nú er komið nóg af slíku rugli. Annars verðum við komin með alla þjóðina á ráðherra og þinglaun fyrir það eitt að rífast en ekki vinna að lausnum.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.8.2009 kl. 00:12
Kæra Anna. Á fólk einhvern stuðning skilið, sem vill bera kápuna á báðum öxlum, eins og Ögmundur. Gott er að hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri, segir máltækið. Það er ákkúrat það sem Vg er að gera.
Gústaf Níelsson, 12.8.2009 kl. 00:27
Gústaf. Ef svo er þá er það meir en ég veit. Eg held alla vega að VG sé heiðarlegasti flokkurinn sem er starfandi núna.
Kanski er líka til eitthvað sem heitir málamiðlun. það er ekki hægt að fara bara eintóma einstefnu eins og samfylkingin er að gera.
þannig getur ekkert samstarf gengið.
Ekki gæti ég persónulega hugsað mér að þurfa að vera í málamiðlunarviðræðum við samfylkinguna. þar er ekkert sem heitir að mætast á miðri leið og taka tillit til annara sjónarmiða eftir því sem mér sýnist og finnst mér það sorglegt.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.8.2009 kl. 01:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.